TikTok-stjarnan Bobby Moudy er látinn aðeins 46 ára gamall en hann féll fyrir eigin hendi.
TikTok-stjarnan Bobby Moudy er látinn aðeins 46 ára gamall en hann féll fyrir eigin hendi.
TikTok-stjarnan Bobby Moudy er látinn aðeins 46 ára gamall en hann féll fyrir eigin hendi.
Moudy fannst látinn á heimili sínu í Mississippi hinn 28. apríl síðastliðinn. Hann lætur eftir sig eiginkonu sína, Jennifer og þrjú börn þeirra, Max, Charleigh og Kaytlin en sú síðastnefnda deildi TikTok-myndbandi í minningu föður síns.
„Bobby var ástríkur eiginmaður, faðir, bróðir og vinur. Þann 28. apríl var hann fórnarlamb sjálfsvígs. Bobby var fullur af lífi og hlæjandi en fjárhagsáhyggjur íþyngdu honum.“
Moudy var með yfir 350.000 fylgjendur á samfélagsmiðlinum og deildi gjarnan myndböndum af sér að ónáða börn sín á glaðlegan máta.