Myndasyrpa: Líktu eftir sprengingu í bát

Öryggi sjófarenda | 8. maí 2023

Myndasyrpa: Líktu eftir sprengingu í bát

Um hundrað manns tóku þátt í björgunaræfingu á laugardag þar sem líkt var eftir sprengingu í vélarrými farþegabáts á Faxaflóa. Verkefnið var samstarfsverkefni Landhelgisgæslunnar, Landsbjargar, slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar.

Björgunaraðgerðir miðuðu að því að bjarga fólki í neyð um borð í hvalaskoðunarbátunum eftir að sprengingin kom upp. Þyrla Gæslunnar flutti sex slökkviliðsmenn um borð. Því næst voru tveir fluttir frá borði með hjálp sigmanns en fjórir voru fluttir um borð í varðskipið Þór.

„Þetta var mikilvægt og gott tækifæri. Bæði fyrir hvalaskoðunarfyrirtækið Eldingu en einnig fyrir okkur sömuleiðis að kynnast þeirra vinnubrögðum. Með þessu leiddum við saman alla viðbragðsaðila,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Gæslunnar.

Björgunaræfing á Faxaflóa Verkefnið var samstarfsverkefni allra íslensku viðbragðsaðilanna. Um …
Björgunaræfing á Faxaflóa Verkefnið var samstarfsverkefni allra íslensku viðbragðsaðilanna. Um er að ræða fyrstu æfinguna í fyrirhugaðri röð fleiri æfinga. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrsta æfing í æfingaröð

Stuðst var við þyrlu Gæslunnar, varðskipið Þór, björgunarskip frá Landsbjörgu og skip frá hvalaskoðunarfyrirtækinu sem var vettvangur æfingarinnar. Ásgeir segir þetta fyrstu æfingu í æfingaröð. Henni verður framhaldið síðar með sömu íslensku viðbragðsaðilum.

Björgunaræfing á Faxaflóa Líkt var eftir því að sprenging kæmi …
Björgunaræfing á Faxaflóa Líkt var eftir því að sprenging kæmi upp í vélarrými hvalaskoðunarbáts. Þyrlan og varðskipið fluttu nauðstadda á brott. mbl.is/Árni Sæberg
Fjöldi viðbragðsaðila tóku þátt.
Fjöldi viðbragðsaðila tóku þátt. mbl.is/Árni Sæberg

Blíðskaparveður var meðan æfing fór fram.
Blíðskaparveður var meðan æfing fór fram. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is