Það var einstök stemning í Hafnarhúsinu á föstudagskvöldið þegar Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar og íslenska hönnunarmerkið Farmers Market héldu tískusýningu á nýjustu afurðum sínum í tengslum við HönnunarMars. Þetta var í fyrsta skipti í þrjú ár sem alvöru tískusýning fer fram í Hafnarhúsinu í tengslum við HönnunarMars.

Sýningarnar tvær voru skemmtilegar en það sem gerði þær sérstakar var að tónlistin var flutt á sviðinu - ekki leikin upptaka eins og stundum tíðkast. Einn af hönnuðunum hjá Kormáki og Skildi, Gunni Hilmars, var einn af þeim sem spilaði á sýningunni.
Sýningin laðaði að fjölmarga þekkta einstaklinga eins og Dorrit Moussaieff, Steinunni Sigurðardóttur fatahönnuð, Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor, Höllu Helgadóttur framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar, Greip Gíslason verkefnastjóra, Börk Sigþórsson ljósmyndara og Söru Jónsdóttur hönnuð.
Þar var líka Líf Magneudóttir borgarfulltrúi, Selma Ragnarsdóttir fatahönnuður, Ólöf Birna Garðarsdóttir hjá Reykjavík Letterpress og Kristín Eva Ólafsdóttir hjá Gagarín.
Eins og sjá má á myndunum er mikil gróska í íslenskri hönnun og þess gætt að engum verði kalt þegar vindar blása.