Afsökun ekki á vegum Samherja

Samherji í Namibíu | 11. maí 2023

Afsökun ekki á vegum Samherja

Samherji kveðst ekki vera á bak við heimasíðu og fréttatilkynningu þar sem útgerðarfélagið er sagt biðjast afsökunar og lofar að greiða skaðabætur í tegslum við Namibíumálið.

Afsökun ekki á vegum Samherja

Samherji í Namibíu | 11. maí 2023

Heimasíðan er sett upp í Bretlandi og er gefið í …
Heimasíðan er sett upp í Bretlandi og er gefið í skyn að útgerðarfélagið Samherji sé ábyrgðaraðilinn, svo er ekki. Skjáskot

Samherji kveðst ekki vera á bak við heimasíðu og fréttatilkynningu þar sem útgerðarfélagið er sagt biðjast afsökunar og lofar að greiða skaðabætur í tegslum við Namibíumálið.

Samherji kveðst ekki vera á bak við heimasíðu og fréttatilkynningu þar sem útgerðarfélagið er sagt biðjast afsökunar og lofar að greiða skaðabætur í tegslum við Namibíumálið.

„Athygli Samherja hefur verið vakin á því að svo virðist sem óprúttnir aðilar hafi sent falsaða fréttatilkynningu í nafni Samherja til erlendra fjölmiðla. Þá virðast sömu aðilar hafa sett upp falska heimasíðu í nafni fyrirtækisins sem hýst er í Bretlandi og samhliða dreift fölsuðum auglýsingaborðum,“ segir í yfirlýsingu frá Samherja.

Segir fyrirtækið hvorki heimasíðuna né fréttatilkynningu „hafa nein tengsl við Samherja eða starfsmenn fyrirtækisins. Svo virðist sem um sé að ræða skipulagða árás sem fyrirtækið tekur mjög alvarlega. Samherji mun óska eftir því að hin falska vefsíða verði tekin niður.“

Síðan sem um ræðir hefur verið stofnuð með bresku léni og segir meðal annars: „Við hjá Samherja viljum biðjast formlega afsökunar á aðkomu okkar í tengslum við Fishrot hneykslið. Við viðurkennum alvarleika ásakanna á hendur okkur, sem fela í sér spillingu, mútur og nýlendustefnu. Þessar aðgerðir hafa grafið undan stjórnarháttum Namibíu og svipt landið mikilvægum tekjum fyrir heilbrigðiskerfi og menntun.“

mbl.is