Ofurhjónin Ben Affleck og Jennifer Lopez hafa heillað hug og hjarta allra með ást sinni. Að undanförnu hafa hjónin hins vegar ratað mikið í fjölmiðla vegna opinberra rifrilda sín á milli.

Hjónin sáust fyrst taka snerru opinberlega á Grammy-verðlaunahátíðinni. Þá virtust þau eiga í spennuþrungnum samræðum á viðburði sem þau sóttu nýverið. Við það tækifæri náðust ljósmyndir af þeim sem fóru eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum.
Um helgina náðust enn fleiri myndir og myndbönd af Affleck og Lopez eiga í eldfimum samræðum sem birtust á vef Daily Mail. Að sögn ljósmyndarans virtist Affleck „svekktur og pirraður“ á meðan Lopez leit út fyrir að vera „döpur“ yfir samskiptum þeirra.