Frægir flykkjast á Sauðárkrók (myndir)

Frægir flykkjast á Sauðárkrók (myndir)

Það er nóg af þjóðþekktum einstaklingum í stúkunni í Síkinu á Sauðárkróki þessa stundina þar sem leikur Tindastóls og Vals í úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik hefst eftir nokkrar mínútur.

Frægir flykkjast á Sauðárkrók (myndir)

Úrslitaeinvígi Vals og Tindastóls | 15. maí 2023

Rúrik Gíslason er á Sauðárkróki.
Rúrik Gíslason er á Sauðárkróki. Ljósmynd/Jóhann Helgi

Það er nóg af þjóðþekktum einstaklingum í stúkunni í Síkinu á Sauðárkróki þessa stundina þar sem leikur Tindastóls og Vals í úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik hefst eftir nokkrar mínútur.

Það er nóg af þjóðþekktum einstaklingum í stúkunni í Síkinu á Sauðárkróki þessa stundina þar sem leikur Tindastóls og Vals í úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik hefst eftir nokkrar mínútur.

Um fjórða leik liðanna er að ræða en staðan í einvíginu er 2:1, Tindastól í vil, og fer Íslandsmeistarabikarinn á loft í kvöld takist Tindastóli að vinna. 

Gylfi Þór Sigurðsson er á sínum stað í stúkunni en hann hefur mætt á alla leiki liðanna í úrslitunum.

Þá er Rúrik Gíslason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, einnig í stúkunni sem og Jón Arnór Stefánsson, einn besti körfuboltamaður sem Ísland heftur átt.

Forsetinn, Guðni Th. Jóhannesson er einnig á svæðinu, en hann fékk konunglegar móttökur í Síkinu eins og mbl.is sagði frá fyrr í dag.

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Ljósmynd/Jóhann Helgi
Guðni Th. Jóhannesson.
Guðni Th. Jóhannesson. Ljósmynd/Jóhann Helgi
Helgi Magnússon, þjálfari KR, og Jón Arnór Stefánsson.
Helgi Magnússon, þjálfari KR, og Jón Arnór Stefánsson. Ljósmynd/Jóhann Helgi
mbl.is