Það er afar skemmtilegt að sjá Pavel Ermolinskij, þjálfara Tindastóls, og Finn Frey Stefánsson, þjálfara Vals, leiða saman hesta sína í oddaleik á Íslandsmóti karla í körfubolta. Eftir fjóra útisigra til þessa er staðan í einvíginu 2:2 og ráðast úrslitin loks á Hlíðarenda í kvöld.

Finnur og Pavel þekkjast býsna vel því Pavel hefur sex sinnum verið í Íslandsmeistaraliði sem Finnur þjálfar. Þrátt fyrir það fæddist Finnur aðeins þremur árum á undan Pavel, en fór ungur á fulla ferð í þjálfun á meðan Pavel öðlaðist mikla reynslu sem leikmaður.
Pavel og Finnur voru afar sigursælir hjá KR og urðu meistarar saman á hverju ári frá 2014 til 2018. Þá var Pavel lykilmaður hjá Finni og ljóst að Finnur treysti fáum eins vel. Pavel var einn besti leikmaður deildarinnar á þeim árum.
Bakvörðinn má sjá í heild sinni í Morgunblaðinu, sem kom út í morgun.