Leiðtogar G7-iðnríkjanna hafa lýst því yfir að leggja þurfi mat á áhrif gervigreindar á alþjóðavísu og stuðla þurfi að ábyrgri nýtingu þeirrar tækni.

Yfirlýsing þessi var gefin út að loknum fundi leiðtoganna um málefnið, en þeir eru nú saman komnir í Hiroshima í Japan þar sem ýmis þungavigtarmál eru rædd.
Á fundinum var tekin ákvörðun um að setja saman vinnuhóp til þess að tækla álitaefni tengd gervigreind, allt frá höfundarétti til ábyrgðar á upplýsingaóreiðu og falsfréttum.
Samuel Altman, framkvæmdastjóri OpenAi og einn af stofnendum spjallmennisins ChatGPT, er meðal þeirra sem kallað hefur eftir því að settar verði skorður við gervigreindartækni. Þetta kom fram í máli hans er hann sat fyrir svörum um mállíkanið og gervigreindartækni á Bandaríkjaþingi.