Birta ábendingar almennings og sérfræðinga

Auðlindin okkar | 26. maí 2023

Birta ábendingar almennings og sérfræðinga

Gerð hefur verið samantekt á ábendingum almennings, sérfræðinga og hagaðila sem leitað var til við undirbúning sjávarútvegsstefnu í verkefninu Auðlindin okkar og hefur hún verið birt á vef stjórnarráðsins undir heitinu Tæpitungulaust.

Birta ábendingar almennings og sérfræðinga

Auðlindin okkar | 26. maí 2023

Birtar hafa verið ábendingar almennings og sérfræðinga vegna verkefnisins Auðlindin …
Birtar hafa verið ábendingar almennings og sérfræðinga vegna verkefnisins Auðlindin okkar. mbl.is/Sigurður Bogi

Gerð hefur verið samantekt á ábendingum almennings, sérfræðinga og hagaðila sem leitað var til við undirbúning sjávarútvegsstefnu í verkefninu Auðlindin okkar og hefur hún verið birt á vef stjórnarráðsins undir heitinu Tæpitungulaust.

Gerð hefur verið samantekt á ábendingum almennings, sérfræðinga og hagaðila sem leitað var til við undirbúning sjávarútvegsstefnu í verkefninu Auðlindin okkar og hefur hún verið birt á vef stjórnarráðsins undir heitinu Tæpitungulaust.

Í samantektinni má finna ábendingar þeirra 132 sérfræðinga sem samstarfshópar og samráðsnefnd verkefnisins leituðu til sem og ummæli fundargesta á samræðufundunum á Akureyri, Eskifirði, Ísafirði, Reykjavík og Vestmannaeyjum. Alls sóttu um 500 gestir samræðufundina og fylgdust um 5.000 með þeim í streymi, að því er segir í tilkynningunni á vef stjórnarráðsins.

Þá má einnig lesa í samantektinni þær athugasemdir sem fram komu í samráðsgátt stjórnvalda við bráðabirgðatillögur samráðsnefndar verkefnisins sem kynntar voru í janúar auk skriflegra svara úr spurningakönnun Félagsvísindastofnunar og ábendinga sem bárust á netfangið audlindinokkar@mar.is.

Gert er ráð fyrir að starfshópar verkefnisins ljúki vinnu sinni á næstunni og að endanlegar tillögur verði kynntar 6. júní. Þá er áætlað að lagt verði undirbúin frumvörp sem lögð verða fram á vorþingi 2024.

mbl.is