Viljayfirlýsing vegna framtíðaraðstöðu fyrir skipaútgerð Landhelgisgæslunnar í Reykjaneshöfn hefur verið undirrituð. Reykjaneshöfn er talin vel staðsett vegna stuttrar fjarlægðar frá aðstöðu LHG á Keflavíkurflugvelli og höfuðborgarsvæðinu.

Viljayfirlýsingin var undirrituð af Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra, Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, Auðuni F. Kristinssyni, framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar og Halldóri K. Hermannssyni, hafnarstjóra Reykjaneshafnar.
„Áformin lúta að gerð langtímaleigusamnings um viðlegukant, auk nauðsynlegrar aðstöðu fyrir þau tæki og búnað sem tilheyra rekstrinum, auk veituþjónustu. Markmiðið er að heimahöfn viðkomandi skipa yrði Reykjaneshöfn og að starfsemi tengd rekstri þeirra færist að verulegu leyti þangað,“ segir á vef Stjórnarráðsins um málið.
Þessi áætlun haggar ekki útgerð varðskipsins Freyju frá Norðurlandi.
Þeir sem komi að viljayfirlýsingunni lýsi því yfir með henni að þeir séu reiðubúnir til þess að vinna áfram að því að fyrrnefnd uppbygging verði að veruleika í samræmi við ofangreindar áherslur.
Í samtali við mbl.is í dag sagði dómsmálaráðherra undirbúningsvinnu til þess að tryggja varðskipinu Þór heimilisfesti á Suðurnesjum hafa staðið yfir síðan á síðasta ári.
„Það verður nær opnu hafsvæði og eftir að varðskipið Freyja var sett á Siglufjörð var markmiðið að vera með varðskipin sitt hvorum megin á landinu. Þetta er talin mjög heppileg og góð staðsetning í því sambandi,“ sagði ráðherra.