Tillögur um sjávarútvegskerfið kynntar í ágúst

Auðlindin okkar | 2. júní 2023

Tillögur um sjávarútvegskerfið kynntar í ágúst

Ákveðið hefur verið að fresta kynningu á endanlegum tillögum starfshópa verkefnisins Auðlindin okkar um breytingar á sjávarútvegsstefnu stjórnvalda fram í ágúst. Upphaflega stóð til að kynna tillögurnar á þriðjudag í næstu viku, 6. júní.

Tillögur um sjávarútvegskerfið kynntar í ágúst

Auðlindin okkar | 2. júní 2023

Tillögur um breytingar á sjávarútvegsstefnu stjórnvalda verða ekki kynntar fyrr …
Tillögur um breytingar á sjávarútvegsstefnu stjórnvalda verða ekki kynntar fyrr en í lok ágústmánaðar. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Ákveðið hefur verið að fresta kynningu á endanlegum tillögum starfshópa verkefnisins Auðlindin okkar um breytingar á sjávarútvegsstefnu stjórnvalda fram í ágúst. Upphaflega stóð til að kynna tillögurnar á þriðjudag í næstu viku, 6. júní.

Ákveðið hefur verið að fresta kynningu á endanlegum tillögum starfshópa verkefnisins Auðlindin okkar um breytingar á sjávarútvegsstefnu stjórnvalda fram í ágúst. Upphaflega stóð til að kynna tillögurnar á þriðjudag í næstu viku, 6. júní.

„Seinni hluta ágúst þessa árs verða niðurstöður starfshópa verkefnisins Auðlindin okkar kynntar. Í framhaldinu verða undirbúnar lagabreytingar sem áætlað er að verði lagðar fram á vorþingi 2024,“ segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Niðurstöðurnar eru afurð vinnu fjögurra starfshópa og samráðsnefndar um sjávarútvegsstefnu sem Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra skipaði í júní 2022 til að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum.

„Starfshóparnir hafa greint áskoranir og tækifæri á afmörkuðum sviðum; samfélagi, aðgengi, umgengni og tækifærum og eru, ásamt samráðsnefnd, skipuð samkvæmt sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks frá 28. nóvember 2021.“

mbl.is