„Þetta er náttúrlega bara sóðaskapur“

Öryggi sjófarenda | 3. júní 2023

„Þetta er náttúrlega bara sóðaskapur“

Kræklingalínur, sem voru yfirgefnar á fimm ræktunarstöðum í Eyjafirði í kjölfar gjaldþrots félags fyrir áratug, ógna öryggi sjófarenda og hafa áhrif á rekstur haftengdrar starfsemi. Fyrri hreinsunartilraunir hafa borið takmarkaðan árangur.

„Þetta er náttúrlega bara sóðaskapur“

Öryggi sjófarenda | 3. júní 2023

Freyr Antonsson, framkvæmdastjóri Arctic Sea Tours, segir kræklingalínurnar sem skildar …
Freyr Antonsson, framkvæmdastjóri Arctic Sea Tours, segir kræklingalínurnar sem skildar hafa verið eftir í sjó eftir að Norðurskel ehf. fór í þrot skapa hættu og vera sóðaskap. Ljósmynd/Aðsend

Kræklingalínur, sem voru yfirgefnar á fimm ræktunarstöðum í Eyjafirði í kjölfar gjaldþrots félags fyrir áratug, ógna öryggi sjófarenda og hafa áhrif á rekstur haftengdrar starfsemi. Fyrri hreinsunartilraunir hafa borið takmarkaðan árangur.

Kræklingalínur, sem voru yfirgefnar á fimm ræktunarstöðum í Eyjafirði í kjölfar gjaldþrots félags fyrir áratug, ógna öryggi sjófarenda og hafa áhrif á rekstur haftengdrar starfsemi. Fyrri hreinsunartilraunir hafa borið takmarkaðan árangur.

Í sjómannadagsblaði 200 mílna sem fylgir Morgunblaðinu í dag kallar Freyr Antonsson, framkvæmdastjóri Arctic SeaTours, eftir átaki til að hreinsa fjörðinn, en bátar félagsins hafa tvisvar lent í því að línurnar fari í skrúfu bátanna á meðan farþegar eru um borð.

Línurnar sem festust nýverið í skrúfu báts félagsins fyllti heilt …
Línurnar sem festust nýverið í skrúfu báts félagsins fyllti heilt kar og vó um hálft tonn. Ljósmynd/Aðsend

„Því miður er mikið af þessum línum enn þá í sjónum á ótal stöðum. Það skapar mikla hættu fyrir báta og skip sem sigla um hér í Eyjafirði,“ segir Freyr og bendir á að vandinn virðist vera að ekki virðist ljóst hver eigi að bera kostnaðinn af því að fjarlægja línurnar.

Nánar er fjallað um málið í sjómannadagsblaði 200 mílna sem fylgir Morgunblaðinu í dag.

mbl.is