Fiskur og franskar eða „fish & chips“ er alltjent nefndur þjóðarréttur Englendinga. Íslenskir fiskútflytjendur hafa lagt lóð sín á vogarskálarnar til að Englendingar verði ekki uppiskroppa með fiskmeti eins lengi og elstu menn muna. Víða á Bretlandseyjum má finna sölubása, skyndibitastaði og veitingahús sem selja réttinn og er The Mayfair Chippy þar engin undantekning.

The Mayfair Chippy er aðlaðandi hverfisveitingastaður sem býður upp á margverðlaunaða „fish & chips“ rétti ásamt úrvali af öðrum fiskréttum, ostrum, krabba og krækling. Fátt þykir Bretunum betra en klassíski rétturinn þeirra sem kallast á frummálinu „fish & chips og þykir nostalgískur þægindamatur hjá breskum þegnum. Mayfair Chippy leggur áherslu á frábæra fiskrétti, þar sem eingöngu er boðið upp á ferskustu hráefnin samkvæmt ströngustu stöðlum sem völ er á.
Það er engum blöðum um það að flétta að „fish & chips“ er sérstaða The Mayfair Chippy, sem þarf ekki að koma á óvart, þar sem meiningin á bak við orðið Chippy vísar til söluaðila sem selur „fish & chips“ en staðurinn býður einnig upp á aðra hefðbundna klassíska breska rétti, sem sumir hverjir breytast eftir árstíðum. Þeir sem eru miklir aðdáendur „fish & chips“ ættu að lesa sig til um staðinn og hafa hann sem viðkomustað næst þegar arkað er til Lundúna. Veitingastaðurinn er lítill og notalegur, staðsettur í norður hluta Mayfair hverfisins í London. Best þykir að bóka borð fyrir fram til að tryggja sér borð.