Ríkið hafnaði sátt og tapaði

Makríldómar Hæstaréttar | 7. júní 2023

Ríkið hafnaði sátt og tapaði

Íslenska ríkið var í gær dæmt til að greiða útgerðarfélögunum Hugin VE-55 og Vinnslustöðinni (VSV) tvo milljarða króna í skaðabætur í tveimur málum sem félögin ráku vegna tjóns sem útgerðirnar urðu fyrir við útgáfu makrílkvóta á liðnum áratug. Útgerðirnar byggðu kröfur sínar á óumdeildri skaðabótaskyldu ríkisins, þar sem ranglega hefði verið staðið að úthlutun makrílkvóta, annars vegar árin 2011-2014 og hins vegar 2014-2018.

Ríkið hafnaði sátt og tapaði

Makríldómar Hæstaréttar | 7. júní 2023

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson.

Íslenska ríkið var í gær dæmt til að greiða útgerðarfélögunum Hugin VE-55 og Vinnslustöðinni (VSV) tvo milljarða króna í skaðabætur í tveimur málum sem félögin ráku vegna tjóns sem útgerðirnar urðu fyrir við útgáfu makrílkvóta á liðnum áratug. Útgerðirnar byggðu kröfur sínar á óumdeildri skaðabótaskyldu ríkisins, þar sem ranglega hefði verið staðið að úthlutun makrílkvóta, annars vegar árin 2011-2014 og hins vegar 2014-2018.

Íslenska ríkið var í gær dæmt til að greiða útgerðarfélögunum Hugin VE-55 og Vinnslustöðinni (VSV) tvo milljarða króna í skaðabætur í tveimur málum sem félögin ráku vegna tjóns sem útgerðirnar urðu fyrir við útgáfu makrílkvóta á liðnum áratug. Útgerðirnar byggðu kröfur sínar á óumdeildri skaðabótaskyldu ríkisins, þar sem ranglega hefði verið staðið að úthlutun makrílkvóta, annars vegar árin 2011-2014 og hins vegar 2014-2018.

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdstjóri VSV, segir að fyrirtækið hafi ítrekað boðið ríkisvaldinu sátt í málinu en henni hafi verið hafnað. Þá hafi ríkið ekki stigið nein skref til að leiðrétta úthlutunina.

Sjö útgerðarfélög höfðuðu upphaflega skaðabótamál gegn ríkinu, eftir að Hæstiréttur hafði úrskurðað um ólögmæti aflaúthlutunar, en fimm þeirra féllu frá málinu eftir að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hótaði því að ríkið myndi endurheimta mögulegar bætur með skattlagningu. „Þetta er í raun fáránleg afstaða,“ segir Sigurgeir Brynjar, spurður um þau ummæli fjármálaráðherra nú. 

mbl.is