Birgitta Líf með súper einfaldan og góðan morgunverð

Uppskriftir | 18. júní 2023

Það er ávallt jafn spennandi að fá nýjar uppskriftir að morgunverði og auka hugmyndaflugið. Við fengum Birgittu Líf Björnsdóttir markaðsstjóra World Class, áhrifavald og raunveruleikapersónu í LXS á Stöð 2 til ljóstra upp sínum uppáhaldsmorgunverði. Heyrst hefur að Birgitta lumi einmitt á góðri uppskrift af hollum og næringarríkum morgunverði sem bragðast eins og sælgæti.

Birgitta Líf Björnsdóttir markaðsstjóri og áhrifavaldur ljóstrar upp sínum uppáhaldsmorgunverði …
Birgitta Líf Björnsdóttir markaðsstjóri og áhrifavaldur ljóstrar upp sínum uppáhaldsmorgunverði sem er súper einfaldur. Samsett mynd

Það er ávallt jafn spennandi að fá nýjar uppskriftir að morgunverði og auka hugmyndaflugið. Við fengum Birgittu Líf Björnsdóttir markaðsstjóra World Class, áhrifavald og raunveruleikapersónu í LXS á Stöð 2 til ljóstra upp sínum uppáhaldsmorgunverði. Heyrst hefur að Birgitta lumi einmitt á góðri uppskrift af hollum og næringarríkum morgunverði sem bragðast eins og sælgæti.

Það er ávallt jafn spennandi að fá nýjar uppskriftir að morgunverði og auka hugmyndaflugið. Við fengum Birgittu Líf Björnsdóttir markaðsstjóra World Class, áhrifavald og raunveruleikapersónu í LXS á Stöð 2 til ljóstra upp sínum uppáhaldsmorgunverði. Heyrst hefur að Birgitta lumi einmitt á góðri uppskrift af hollum og næringarríkum morgunverði sem bragðast eins og sælgæti.

Færðu þér ávallt morgunverð?

„Nei, ég er alltaf að reyna vera duglegri að fá mér góðan morgunmat. Ég byrja daginn oftast á æfingu og fæ mér svo góða næringu eftir hana.“

Finnst þér skipta sköpun að fá þér morgunverð fyrir daginn?

„Það fer auðvitað eftir hvað maður er að gera en mér finnst mestu máli skipta að fyrsta máltíðin sé næringarrík og góð frekar en tímasetningin á henni.“

Hvað er uppáhaldsmorgunverðurinn þinn?

„Overnight oats“ eru í mestu uppáhaldi þegar ég nenni að græja það kvöldið áður. Það tekur reyndar enga stund og er súper einfalt og gott.“

„Overnight oats“

Fyrir 1

  • Hafrar fyrir einn skammt
  • Chiafræ eftir smekk
  • Möndlumjólk eftir smekk
  • Hunang eftir smekk
  • Hnetusmjör eftir smekk
  • Ein lúka frosin bláber 

Aðferð:

  1. Takið til góða krukku sem hentar fyrir skammt fyrir einn
  2. Blandið öllu hráefninu nema bláberjunum saman í krukkuna.
  3. Setjið bláber ofan á blönduna.
  4. Geymið í ísskáp yfir nótt.
  5. Njótið og bætið við bláberjum ef vill. 
mbl.is