Fótboltahjónin Ása María Reginsdóttir og Emil Hallfreðsson buðu í teiti á veitingastað sínum Olifa La Madre Pizza á Suðurlandsbraut á dögunum. Hjónin hafa búið á Ítalíu í 15 ár og hafa mikla ástríðu fyrir ítalskri matargerð. Matarferðalagið hófst í eldhúsinu hjá þeim á Ítalíu þegar þau stofnuðu fyrirtækið Olifa sem sérhæfir sig í upprunavottuðum jómfrúarolíum undir sama merki. Nú hefur þetta ferðalag borið nýjan ávöxt í Pala pizzunum á Olifa La Madre pizza og því var slegið til veislu.

Pala pizzur eru ferhyrndar og búnar til úr sérstöku degi sem er búið til úr þremur tegundum af „Biga“ hveiti. Hveititegundirnar þrjár innihalda mismikið próteinmagn og með því að blanda þeim saman verður til sérstakt og afgerandi bragð og áferð. Eftir blöndun er deigið látið hefast í 24 klukkustundir. „Biga“ deigið er mun rakara en hefðbundið Napoletana pizzadeig og það er bakað lengur við lægra hitastig. Aðalsérkenni Biga deigsins er brakandi og stökkt ytra lag, mjúkur og safaríkur kjarni og einstakur léttleiki.
Pala pizzurnar runnu ljúflega niður í boðinu eins og sést á myndunum.