Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra mætti á fund Flugmálafélags Íslands um stöðu Reykjavíkurflugvallar í dag. Tilefnið var öðru frekar fyrirhuguð íbúðabyggð í Skerjafirði og áhrif hennar á rekstur flugvallarins.

Flestir frummælendur voru mjög gagnrýnir á fyrirhugaða byggð. Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia innanlands, sagði það sérkennilegt að Fluggarðar eigi að víkja árið 2024 fyrir byggðinni, því þar sé grasrót flugsins á Íslandi.
Hún sagði nábýli íbúðabyggðar og flugvallar ganga illa. Hún mælir það helst á því að Isavia berist kvartanir úr Hlíðarendahverfi. Komi þær kvartanir nokkuð á óvart, þar sem fólk sem þar býr, ætti að átta sig að nábýlinu við flugvöll fylgdi hávaði.
Orri Eiríksson, flugstjóri Icelandair, kom að gerð skýrslu innviðaráðuneytis um áhrif nýrrar byggðar og framkvæmda á flug- og rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar. Skoðaði nefndin það helst að nýja byggðin hafi áhrif á vindafar á flugbrautum.
Eins mun skuggavarp af hverfinu hafa áhrif á flugbrautirnar. Hrím og snjór safnist þá frekar fyrir og þarf því að ryðja þær og hreinsa fyrr en ella, með tilheyrandi ónæði fyrir nágrannana. Telur Orri skástu lausnina felast í því að hafa byggðina lágreista, þannig að áhrif hennar á flugbrautir séu sem minnstar.
Sigurður Ingi sagði sig standa við gerða samninga, sem margir hverjir hafi verið gerðir af forverum hans í embætti úr öðrum flokkum. Verið sé að rannsaka fýsileika flugvallar í Hvassahrauni en óraunsætt sé að tala um að völlur þar verði komið í gagnið fyrr en eftir 20-25 ár ef af verður.
Hann horfir því til þess að Reykjavíkurflugvöllur sé í notkun næstu áratugina og hið opinbera hafi eyrnamerkt umtalsvert fé til viðhalds vallarins, sem felst meðal annars í því að reist verður ný flugstöð í stað þeirrar gömlu.
Fundarstjóri var Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands, sem sagði að orkuskipti í flugrekstri væru hafin. Kom það fram í máli hans að ljóst sé að miklar breytingar verði á næstu árum en að innviðina skorti til þess á vellinum.
Sigurður Ingi sagði að viðhaldsfé til vallarins geri ekki ráð fyrir orkuskiptunum.