Utanríkisráðherra Íslands, segir áætlaðan heildarkostnað ríkissjóðs og annarra opinberra aðila í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins, sem fór fram í Hörpu 16. og 17. maí, vera um 2 milljarða. Endanlegur raunkostnaður mun þó liggja fyrir á næstu vikum.

Í skriflegu svari við fyrirspurn Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, segir að utanríkisráðuneytið hafi leitt undirbúningsvinnu að fundinum í samstarfi við forsætisráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, embætti ríkislögreglustjóra, Isavia, önnur ráðuneyti og stofnanir.
Í kostnaðaráætlun lögreglu frá 9. mars var gert ráð fyrir að helstu útgjaldaliðir næmu samtals um 1,391 milljarð, en ráðuneytið gerði ráð fyrir um 472 milljónum króna í útgjöld.
Þá gerði Isavia ráð fyrir að samanlagður heildarkostnaður á Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvelli næmi um 25 milljónum króna.
Samkvæmt þeim tölum ætti heildarkostnaður að vera tæpir 1.9 milljarðar.
Hér fyrir neðan má sjá sundurliðun helstu útgjalda í svari ráðuneytisins, en endanlegur raunkostnaður liggur ekki fyrir að svo stöddu.
Í kostnaðaráætlun lögreglu frá 9. mars var gert ráð fyrir að helstu útgjaldaliðir yrðu eftirfarandi:
a. Undirbúnings- og skipulagsvinna að undanskildum þjálfunarkostnaði: 240 millj. kr.
b. Þjálfunarkostnaður: 159 millj. kr.
c. Kaup og leiga á búnaði, þ.m.t. tækni- og hugbúnaður: 380 millj. kr.
d. Öryggisgæsla: 612 millj. kr.
Helstu kostnaðarliðir ráðuneytisins samkvæmt áætlun voru eftirtaldir:
a. Kostnaður við umgjörð fundarins: 165 millj. kr.
b. Laun og annar kostnaður vegna þess starfsfólks Stjórnarráðsins sem kom að undirbúningi og framkvæmd fundarins, þ.m.t. öryggisvottanir: Alls um 100 millj. kr.
c. Samgöngur: 82 millj. kr.
d. Kostnaður við leigu og kaup á nauðsynlegum búnaði, m.a. vegna túlkaþjónustu: Um 67 millj. kr.
e. Önnur aðkeypt þjónusta, þ.m.t. útsendingarkostnaður, listamenn og prentun: Um 58 millj. kr.