Ómótstæðileg beygla með reyktum laxi og avókadó

Uppskriftir | 4. júlí 2023

Ómótstæðileg beygla með reyktum laxi og avókadó

Langar þig að koma ferðafélaganum á óvart og gleðja hann með morgunverði sem er bæði fallegur og ljúffengur. Þessi samsetning af ómótstæðilegri beyglu er fullkomin til að bræða matarhjartað. Hægt er að fara í bakaríið snemma að morgni og kaupa nýbakaðar beyglur eða kaupa frosnar beyglur og taka með í ferðalagið og útbúa þessa sælkera beyglu. Þessa er erfitt að standast. Upplagt er að setja á beygluna sælkera álegg eins og reyktan lax og annað gott.

Ómótstæðileg beygla með reyktum laxi og avókadó

Uppskriftir | 4. júlí 2023

Ómótstæðilega beygla með reyktum laxi, avókadó, rjómaosti, sprettum og salati …
Ómótstæðilega beygla með reyktum laxi, avókadó, rjómaosti, sprettum og salati sem gleður bragðlaukana. Ljósmynd/Sjöfn

Langar þig að koma ferðafélaganum á óvart og gleðja hann með morgunverði sem er bæði fallegur og ljúffengur. Þessi samsetning af ómótstæðilegri beyglu er fullkomin til að bræða matarhjartað. Hægt er að fara í bakaríið snemma að morgni og kaupa nýbakaðar beyglur eða kaupa frosnar beyglur og taka með í ferðalagið og útbúa þessa sælkera beyglu. Þessa er erfitt að standast. Upplagt er að setja á beygluna sælkera álegg eins og reyktan lax og annað gott.

Langar þig að koma ferðafélaganum á óvart og gleðja hann með morgunverði sem er bæði fallegur og ljúffengur. Þessi samsetning af ómótstæðilegri beyglu er fullkomin til að bræða matarhjartað. Hægt er að fara í bakaríið snemma að morgni og kaupa nýbakaðar beyglur eða kaupa frosnar beyglur og taka með í ferðalagið og útbúa þessa sælkera beyglu. Þessa er erfitt að standast. Upplagt er að setja á beygluna sælkera álegg eins og reyktan lax og annað gott.

Þeir sem eru lengra komnir í bakstri og hafa nógan tíma geta auðvitað bakað beyglur eftir sínu eigin höfði. Hér er á ferðinni ómótstæðileg beygla með reyktum laxi, rjómaosti, avókadó, eggjahræru, fersku salati, steinselju og sprettum. Hægt er að skreyta diskinn frekar með létt bökuðum tómötum og fersku salati að eigin val. Einn svona diskur á við heila dögurð. Uppskriftin er fyrir tvo.

Ómótstæðilega beygla með reyktum laxi, avókadó og rjómaosti

  • 2 stk. ný­bakaðar beyglur eða frosnar frá Myllunni
  • 4 – 6 sneiðar af reyktum laxi
  • 1 stk. avókadó
  • 2 egg (fyr­ir omm­elett­urnar)
  • Gróft salt og pip­ar eft­ir smekk
  • Rjómaostur
  • Nokkrar greinar af ferskri steinselju
  • Salat að eigin vali og eftir smekk
  • Sprettur að eigin vali, t.d. baunarspírur, radísuspírur eða það sem er hendi næst.
  • Rauðlaukur í sneiðum eftir smekk
  • Þurrkað dillkrydd eftir smekk
  • Ólífu­olía til steik­ing­ar
  • Rifinn parmesan ostur til skrauts

Aðferð:

  1. Byrjið á því að píska eggin saman.
  2. Hitið ólífu­olíu á lít­illi pönnu.
  3. Hellið egg­jablönduna á pönn­una og hrærið með spaða þar til eggjahræran er tilbúin.
  4. Kryddið með salti og pip­ar eft­ir smekk.
  5. Skerið síðan 4 til 6 sneiðar af reyktum laxi.
  6. Skerið beyglurnar í tvennt, þvers­um og ristið.
  7. Setjið botnana á sinn hvorn diskinn.
  8. Smyrjið botn­ana tvo með rjómaosti og kryddið til með dilli.
  9. Setið tvær til þrjár sneiðar af laxi á hvort botn, ofan á rjómaostinn.
  10. Bætið við steinselju og fersku salati á hvorn botn.
  11. Skreytið með salati, sprettum, rauðlaukssneiðum, ofnbökuðum tómötum eða hvað eina sem heillar ykkar bragðlauka.
  12. Skerið avókadóið í sneiðar og setjið sinn hvorn helming við botnana á diskunum líkt og gert er að myndinni. 
  13. Setjið smá eggjahræru ofan hvorn botn.
  14. Leggið lokin yfir botnana, án þess að þrýsta ofan á, vert að setja lokin yfir hálfa beygluna og leyfa álegginu að njóta sín.
  15. Skreytið með rifnum parmesan osti.
  16. Berið fram á fallega skreyttum disk og með hollustu safa eftir smekk.
  17. Njótið með ferðafélaganum.
mbl.is