Arna Bára OnlyFans-stjarna gifti sig á snekkju

Brúðkaup | 13. júlí 2023

OnlyFans-stjarnan Arna Bára Karlsdóttir gekk í það heilaga með argentínsku fyrirsætunni Ian Hachmann hinn 11. júlí síðastliðinn. Athöfnin fór fram í fallegu veðri á glæsilegri snekkju, en af myndum að dæma virðist snekkjan hafa verið stödd á Viðeyjarsundi. 

Arna Bára Karlsdóttir og Ian Hachmann gengu í það heilaga …
Arna Bára Karlsdóttir og Ian Hachmann gengu í það heilaga á snekkju í fallegu veðri. Samsett mynd

OnlyFans-stjarnan Arna Bára Karlsdóttir gekk í það heilaga með argentínsku fyrirsætunni Ian Hachmann hinn 11. júlí síðastliðinn. Athöfnin fór fram í fallegu veðri á glæsilegri snekkju, en af myndum að dæma virðist snekkjan hafa verið stödd á Viðeyjarsundi. 

OnlyFans-stjarnan Arna Bára Karlsdóttir gekk í það heilaga með argentínsku fyrirsætunni Ian Hachmann hinn 11. júlí síðastliðinn. Athöfnin fór fram í fallegu veðri á glæsilegri snekkju, en af myndum að dæma virðist snekkjan hafa verið stödd á Viðeyjarsundi. 

Hjónin hafa að undanförnu framleitt sitt eigið erótíska efni á OnlyFans, en þar að auki hafa þau verið ófeimin við að deila djörfum myndum á Instagram-reikningum sínum. Arna Bára greindi frá því fyrr í vikunni að hún og Ian ætluðu að gifta sig, en í færslunni sem hún birti á Facebook sagði hún að brúðkaupið myndi fara fram á fjögurra hæða snekkju.

Tveggja mínútna brúðkaup

„Tveggja mínútna brúðkaup þar sem var skipst á hringjum og svo beint úr fötunum og hoppað í ískaldann íslenska sjóinn,“ skrifaði Arna Bára við myndskeið sem hún deildi á Instagram, en hún hefur verið dugleg að deila myndum frá deginum á samfélagsmiðlum. 

Gestir brúðkaupsins virtust eiga góðar stundir með nýgiftu hjónunum í kvöldsólinni, en á meðal gesta ver fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir sem virtist skemmta sér konunglega. 

mbl.is