Bachelorette-stjarnan Claire Crawley á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, Ryan Dawkins. Hjónin sem hafa glímt við frjósemisvandamál tilkynntu gleðitíðindin á Instagram–reikningi sínum á miðvikudag.

„Þvotturinn okkar verður mun krúttlegri árið 2024,“ skrifaði Crawley við myndskeið sem sýnir hjónin hengja samfellu sem á stendur „biðinnar virði“ á þvottasnúru. Barnið er væntanlegt í heiminn í janúar á næsta ári og var getið með aðstoð staðgöngumóður.
Crawley og Dawkins giftu sig í febrúar á þessu ári, en Dawkins bað raunveruleikastjörnunnar í október á síðasta ári eftir rúmlega eins árs samband.
Crawley öðlaðist heimsfrægð þegar hún fann ástina í örmum Dale Moss í 16. þáttaröð The Bachelorette. Parið trúlofaði sig í þáttunum en skildi örfáum mánuðum síðar.