Druslugangan var gengin í dag í Reykjavík og hófst hún við Hallgrímskirkju. Þaðan var stefnan tekin á Austurvöll þar sem göngunni lauk með samstöðufundi, ræðum og lifandi tónlistarflutningi.

Druslugangan var fyrst haldin fyrir tólf árum síðan.
Tilgangur hinnar árlegu Druslugöngu er að sýna samstöðu með þolendum kynferðisofbeldi í verki og mótmæla kerfislægu misrétti. Eitt af slagorðum göngunnar er : Við erum öll druslur.
Á meðal ræðuhaldara á Austurvelli var Zahra Hussain, femínískur sjálfsvarnarþjálfari, og fulltrúar femínísku félagasamtakanna Öfga sem barist hafa gegn kynbundnu ofbeldi.
Þá fluttu ungu og efnilegu tónlistarkonurnar Silja Rós og Lúpína meðal annars atriði.
Druslur á Sauðarkróki sameinuðust einnig í samstöðugöngu gegn kynbundnu ofbeldi í dag.