Kaffihúsið Bakað opnaði í síðustu viku á innritunarsvæðinu á 1. hæð Keflavíkurflugvallar, þar sem kaffihúsið Joe & the Juice var áður. Tilkynnt var um lokun Loksins og Joe í Leifsstöð í lok marsmánaðar.

Hjá Bakað er boðið upp á bakkelsi, nýbakað brauð og pizzur, heilsusamlega safa, salöt og kaffi frá Te & kaffi.
Lögð verður áhersla á einfalda rétti, ferskt brauðmeti og pizzur að því er haft er eftir Ágústi Einþórssyni, bakara og hugmyndasmið að vöruframboði Bakað, í fréttatilkynningu frá Isavia.
Síðara kaffihús Bakað verður opnað síðar á árinu inni í verslunar- og veitingarými Keflavíkurflugvallar.
„Eftir því sem farþegum fjölgar verða þarfirnar fjölbreyttari og því er Bakað alveg einstaklega góð viðbót í veitingaflóru flugvallarins. Við erum stöðugt að vinna að því að bæta upplifun farþega og þjónustu við þá og með Bakað fjölgar sannarlega valmöguleikum þeirra,“ er í tilkynningu haft eftir Gunnhildi Erlu Vilbergsdóttur, deildarstjóra verslunar og veitinga á Keflavíkurflugvelli.
HAF Studio sem sér um hönnun staðanna tveggja undanfarin ár komið að hönnun fjölmargra veitingastaða og mathalla.