Fá að landa makríl í Noregi en ekki Íslandi

Makrílveiðar | 26. júlí 2023

Fá að landa makríl í Noregi en ekki Íslandi

Færeyskum skipu verður ekki heimilt að landa makrílafla hér á landi, en ekkert verður því til fyrirstöðu að færeysk skip landi afla í Noregi. Engir samningar hafa náðst milli strandríkja um hlutdeildir ríkjanna í makrílveiðunum.

Fá að landa makríl í Noregi en ekki Íslandi

Makrílveiðar | 26. júlí 2023

Christian í Grjótinum er eitt færeyskra skipa sem landað hafa …
Christian í Grjótinum er eitt færeyskra skipa sem landað hafa afla hér á landi. Færeyskum skipum verður þó ekki heimilt að landa makríl. mbl.is/Albert Kemp

Færeyskum skipu verður ekki heimilt að landa makrílafla hér á landi, en ekkert verður því til fyrirstöðu að færeysk skip landi afla í Noregi. Engir samningar hafa náðst milli strandríkja um hlutdeildir ríkjanna í makrílveiðunum.

Færeyskum skipu verður ekki heimilt að landa makrílafla hér á landi, en ekkert verður því til fyrirstöðu að færeysk skip landi afla í Noregi. Engir samningar hafa náðst milli strandríkja um hlutdeildir ríkjanna í makrílveiðunum.

Dennis Holm, sjávarútvegs- og samgönguráðherra Færeyja, tilkynnit í gær að hann hafi gert breytingar á gildandi reglugerðum um löndun færeyskra skipa á makríl erlendis. Er þarlendum skipum gert að landa öllum afla í Færeyjum að undanskildum 15% sem má landa í erlendum höfnum.

Fram kemur í tilkynningu á vef færeyska sjávarútvegs- og samgönguráðuneytisins að farið hafi verið á leit við íslensk og norsk stjórnvöld í tengslum við heimild til færeyskra skipa til löndunar. „Ísland hefur lýst því yfir að færeysk skip fá ekki leyfi til að landa makríl í íslenskum höfnum, á meðan hefur Noregur tilkynnt að ekkert sé í vegi þess að færeysk skip geti landað í norskum höfnum. Þó er skylda að salan fari fram í gegnum sölukerfi Norges Sildesalgslag.“

mbl.is