Flestir foreldrar kannast við það að kveðja barnið sitt og það byrjar strax að gráta. Það er mjög eðlilegt að það gerist annað slagið en ef það gerist í hvert sinn sem þú kveður barnið glímir það líklega við aðskilnaðarkvíða.

Hér eru nokkur ráð um hvernig á að hjálpa börnum sem glíma við aðskilnaðarkvíða frá vefsíðunni Parents. Ráðin eru sett upp í samráði við Heather Clarke, aðjúnkt í sérkennslu og þroskasálfræði barna.
Aðstæður eins og kveðjustundir, mannamót eða svefntími geta valdið því að börn finna fyrir aðskilnaðarkvíðanum. Í slíkum aðstæðum finna börnin fyrir því að þau séu í burtu frá umönnunaraðila sínum og það getur komið fram sem kvíði.
Nokkur merki um aðskilnaðarkvíða er að þegar foreldri býr sig undir að fara frá barninu, hvort sem það er í stutta stund eða til lengri tíma, haldi barnið fast í foreldrið, sýni af sér mikla frekju, veiti öðrum umönnunaraðilum viðnám eða sýni merki um ótta.