Enn eitt Love Island-sambandið í valnum

Raunveruleikaþættir | 9. ágúst 2023

Enn eitt Love Island-sambandið í valnum

Love Island-stjörnunar Kady McDermott og Ouzy See eru hætt saman, einungis nokkrum vikum eftir að þau yfirgáfu villuna fyrr í sumar. Nokkuð fjaðrafok hefur myndast í kringum meintan kærasta McDermott sem á að hafa beðið eftir henni heima hjá henni á meðan hún sleikti sólina á Mallorca. McDermott þvertekur þó fyrir að hafa átt kærasta þegar hún mætti í Love Island-villuna.

Enn eitt Love Island-sambandið í valnum

Raunveruleikaþættir | 9. ágúst 2023

Kady McDermott og Ouzy See hafa slitið sambandi sínu.
Kady McDermott og Ouzy See hafa slitið sambandi sínu. Samsett mynd

Love Island-stjörnunar Kady McDermott og Ouzy See eru hætt saman, einungis nokkrum vikum eftir að þau yfirgáfu villuna fyrr í sumar. Nokkuð fjaðrafok hefur myndast í kringum meintan kærasta McDermott sem á að hafa beðið eftir henni heima hjá henni á meðan hún sleikti sólina á Mallorca. McDermott þvertekur þó fyrir að hafa átt kærasta þegar hún mætti í Love Island-villuna.

Love Island-stjörnunar Kady McDermott og Ouzy See eru hætt saman, einungis nokkrum vikum eftir að þau yfirgáfu villuna fyrr í sumar. Nokkuð fjaðrafok hefur myndast í kringum meintan kærasta McDermott sem á að hafa beðið eftir henni heima hjá henni á meðan hún sleikti sólina á Mallorca. McDermott þvertekur þó fyrir að hafa átt kærasta þegar hún mætti í Love Island-villuna.

Kady þvertekur fyrir að kærasti hennar hafi beðið eftir henni …
Kady þvertekur fyrir að kærasti hennar hafi beðið eftir henni á heimili hennar á meðan hún tók þátt í Love Island. Skjáskot/Instagram

McDermott staðfesti sambandsslitin á Instagram-reikningi sínum á dögunum og segir þar að hún hafi fengið fregnir af slæmri hegðun See og þau séu nú því miður hætt saman. Fer hún ekki nánar út í hvað See gerði en segir hann vera einn sá indælasta sem hún hefur nokkurn tímann hitt. Hins vegar hafi hún ekki verið tilbúin til þess að halda sambandinu áfram.

Kady McDermott tilkynnti sambandsslitin á Instagram-reikningi sínum.
Kady McDermott tilkynnti sambandsslitin á Instagram-reikningi sínum. Skjáskot/Instagram

See áréttaði á Instagram-reikningi sínum að sambandsslitin hefðu ekkert með meintan kærasta McDermott að gera, heldur hafi gjörðir hans verið ástæðan.

mbl.is