Fjóla aflamest á grásleppuvertíðinni

Grásleppuveiðar | 11. ágúst 2023

Fjóla aflamest á grásleppuvertíðinni

Fjóla SH er aflahæsti grásleppubáturinn á vertíðinni sem lýkur á morgun með rúmlega 70 tonna afla. Á eftir fylgir Magnús HU með 68 tonn og svo Sigurey ST með 67 tonn. Aðeins hefur tekist að landa rúmlega 3.812 tonnum af þeim 4.411 tonnum sem heimilt var að veiða.

Fjóla aflamest á grásleppuvertíðinni

Grásleppuveiðar | 11. ágúst 2023

Fjóla SH hefur landað mestum afla á grálseppuvertíðinni.
Fjóla SH hefur landað mestum afla á grálseppuvertíðinni. Ljósmynd/Ríkarður Ríkarðsson

Fjóla SH er aflahæsti grásleppubáturinn á vertíðinni sem lýkur á morgun með rúmlega 70 tonna afla. Á eftir fylgir Magnús HU með 68 tonn og svo Sigurey ST með 67 tonn. Aðeins hefur tekist að landa rúmlega 3.812 tonnum af þeim 4.411 tonnum sem heimilt var að veiða.

Fjóla SH er aflahæsti grásleppubáturinn á vertíðinni sem lýkur á morgun með rúmlega 70 tonna afla. Á eftir fylgir Magnús HU með 68 tonn og svo Sigurey ST með 67 tonn. Aðeins hefur tekist að landa rúmlega 3.812 tonnum af þeim 4.411 tonnum sem heimilt var að veiða.

Veiðin gekk illa framan af og var leyfi til grásleppuveiða upphaflega gefið út til 25 daga en var í tvígang veiðidögum fjölgað með reglugerð, fyrst í 35 daga og svo í 45 daga. Sem fyrr segir lýkur vertíðinni á öllum veiðisvæðum, en að innanverðum Breiðafirði undanskildum .ar sem heimilt er að veiða til 31. ágúst.

Fiskistofa vekur í tilkynningu á vef sínum athygli á því að í fyrsta sinn var umsóknum um grásleppuleyfi skilað í gegnum nýja umsóknargátt á vef stofnunarinnar. „Það er gaman frá því að segja að grásleppuveiðifólk stóð sig vel í þessu nýja umsóknarferli og voru vandamál minniáttar.“

Alls voru gefin út 174 grásleppuveiðileyfi á árinu og hefur verið landað á 35 stöðum á landinu.

Mestum afla var landað í Stykkishólmi, alls 760 tonn. Næstmest var landað á Drangsnesi og nemur aflinn 340 tonnum. Á Patreksfirði var þriðja mesta grásleppuafla landað eða 240 tonnum.

Sigurey ST-22 er gerð út frá Drangsnesi.
Sigurey ST-22 er gerð út frá Drangsnesi. Ljósmynd/Halldór Höskuldsson
mbl.is