Safaríkar grillaðar kjúklingabringur og meðlæti

Uppskriftir | 13. ágúst 2023

Safaríkar grillaðar kjúklingabringur og meðlæti

Meðan veðrið leikur við okkur þessa dagana er upplagt að grilla og njóta. Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar er þekkt fyrir að koma með girnilega rétti sem allir ráða við eins og þennan. Hún grillaði þessar safaríku og girnilegu kjúklingabringur á dögunum sem er sáraeinfalt að grilla, geta ekki klikkað. Með kjúklingabringunum bauð hún upp á ofnbakaðar sætar kartöflur í teningum sem er líka hægt að grilla á grillpönnu og fyllta sveppir og kalda grillsósu.

Safaríkar grillaðar kjúklingabringur og meðlæti

Uppskriftir | 13. ágúst 2023

Safaríkar og ljúffengar kjúklingarbringur með girnilegu meðlæti.
Safaríkar og ljúffengar kjúklingarbringur með girnilegu meðlæti. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Meðan veðrið leik­ur við okk­ur þessa dag­ana er upp­lagt að grilla og njóta. Berg­lind Hreiðars hjá Gotte­rí og ger­sem­ar er þekkt fyr­ir að koma með girni­lega rétti sem all­ir ráða við eins og þenn­an. Hún grillaði þess­ar safa­ríku og girni­legu kjúk­linga­bring­ur á dög­un­um sem er sára­ein­falt að grilla, geta ekki klikkað. Með kjúk­linga­bring­un­um bauð hún upp á ofn­bakaðar sæt­ar kart­öfl­ur í ten­ing­um sem er líka hægt að grilla á grillpönnu og fyllta svepp­ir og kalda grillsósu.

Ljúft að njóta góða veðrið og grilla þessa dagana.
Ljúft að njóta góða veðrið og grilla þessa dag­ana. Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars

Kjúk­linga­bring­ur og græn­meti

Fyr­ir 4

Kjúk­linga­bring­ur

  • 4 marín­eraðar Ali kjúk­linga­bring­ur með hvít­lauk og kryd­d­jurt­um

Aðferð:

  1. Grillið á vel heitu grilli í 6-8 mín­út­ur á hvorri hlið.
  2. Hvílið í um 10 mín­út­ur áður en þið skerið niður.

Fyllt­ir portobello svepp­ir

  • 4-6 portobello svepp­ir
  • Rif­inn pip­arost­ur (1 box)

Aðferð:

  • Skerið stöng­ul­inn úr og aðeins inn­an úr svepp­un­um.
  • Fyllið með rifn­um pip­arosti og grillið í um 15 mín­út­ur á efri grind/​við óbein­an hita (Berg­lind setti svepp­ina á grillið við óbein­an hita jafn lengi og kjúk­ling­ur­inn var á og það passaði fínt).
  • Sæt­ar kart­öfl­ur í ofni
  • 700 g sæt­ar kart­öfl­ur
  • Ólífu­olía
  • Salt, pip­ar og hvít­lauks­duft eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 190°C.
  2. Flysjið kart­öfl­urn­ar og skerið niður í litla ten­inga.
  3. Setjið í ofnskúffu og hellið 2-3 msk. af ólífu­olíu yfir ásamt kryddi eft­ir smekk og blandið sam­an.
  4. Bakið í ofn­in­um í um 35 mín­út­ur eða þar til kart­öfl­urn­ar eru mjúk­ar í gegn.

Sæt­ar kart­öfl­ur í ofni eða á grillpönnu

  • 700 g sæt­ar kart­öfl­ur
  • Ólífu­olía
  • Salt, pip­ar og hvít­lauks­duft eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 190°C.
  2. Flysjið kart­öfl­urn­ar og skerið niður í litla ten­inga.
  3. Setjið í ofnskúffu og hellið 2-3 msk. af ólífu­olíu yfir ásamt kryddi (eft­ir smekk) og blandið sam­an.
  4. Bakið í ofn­in­um í um 35 mín­út­ur eða þar til kart­öfl­urn­ar eru mjúk­ar í gegn.
  5. Berið fram með kjúk­linga­bring­ur, fylltu portobel­lo­svepp­ina og sætu kart­öfl­urn­ar með kaldri grillsósu að eig­in vali.
mbl.is