„Þá er þetta sem við erum að tala um bara á leiðinni. Ef hitinn í Víti er farinn að hækka svona mikið þá þýðir það að það er komin kvika þarna inn miðað við hvernig landbreytingin hefur verið.“
„Þá er þetta sem við erum að tala um bara á leiðinni. Ef hitinn í Víti er farinn að hækka svona mikið þá þýðir það að það er komin kvika þarna inn miðað við hvernig landbreytingin hefur verið.“
„Þá er þetta sem við erum að tala um bara á leiðinni. Ef hitinn í Víti er farinn að hækka svona mikið þá þýðir það að það er komin kvika þarna inn miðað við hvernig landbreytingin hefur verið.“
Þetta segir Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur í samtali við mbl.is spurður hvernig honum lítist á blikuna við Öskju eftir að vatnshiti í Víti mældist 27 gráður í gær. Það er um níu gráðum hærra en hefur mælst áður í sumar.
Veðurstofa Íslands fékk ábendingu um skammlífan strók í Bátshrauni austan við Víti í gær sem gæti verið til marks um aukna gufuvirkni á svæðinu. Landris hófst í Öskju fyrir um tveimur árum og hefur land risið um 30 sentímetra frá því í september á síðasta ári.
Hann segir að miðað við hitabreytinguna í Víti gæti kvika verið á ansi litlu dýpi.
„Það er engin önnur ástæða en sú að það er eitthvað að hita upp grunnvatnið þarna. Allur jarðhiti er búinn til með hitastreymi frá kviku. Ef hitastigið eykst þá ertu búinn að fá eitthvað heitara inn. Þetta hlýtur að vera á tiltölulega grunnu dýpi því að jarðhitavatnið er ekki að fara marga kílómetra niður í jarðskorpuna.“
Hann segir það nánast ómögulegt að sólarhitun hækki vatnshitan í Víti jafn mikið og raun ber vitni og tekur fram að hann hafi eytt miklum tíma á svæðinu og aldrei orðið var við að hitastigið verði svo hátt í vatninu.
„Þessar vísbendingar virðast allar benda í sömu áttina það er að Askja sé að undirbúa sig. Við þurfum greinilega að fylgjast vel með hitastiginu. Ef það er kominn af stað órói í fjallinu þá getur það farið í gos einn, tveir og þrír. Við verðum allavega að vara fólk við því.“
Þorvaldur hefur áður biðlað til stjórnvalda að loka svæðinu við Öskju og varaði við því að stórslys gæti orðið ef gos myndi hefjast í eldstöðinni á meðan fólk er á svæðinu.
Almannavarnir lýstu yfir óvissustigi á svæðinu í september 2021 og er það enn í gildi.
„Almannavarnir og lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hafa nú þegar komið því í ferli að sett verði upp skilti og aðvaranir á ferðaleiðum og það eru skilti sem snúa þá sérstaklega að þessum jarðhræringum og þeirri hættu sem af því kann að leiða og leiðbeiningum um hvernig bregðast eigi við,“ sagði Sólberg Svanur Bjarnason, deildarstjóri almannavarna, í samtali við mbl.is annan ágúst.