Mygla í húsnæði velferðarsviðs

Mygla í húsnæði | 25. ágúst 2023

Mygla í húsnæði velferðarsviðs

Velferðarsvið Kópavogsbæjar er ekki lengur með starfsemi í Fannborg 6. Slæm loftgæði eru í húsinu sem haft hefur áhrif á starfsfólk hússins og sýna nýjustu mælingar há gildi myglugróar. Því eru ekki forsendur fyrir því að velferðarsvið starfi þar áfram.

Mygla í húsnæði velferðarsviðs

Mygla í húsnæði | 25. ágúst 2023

Fannborg 6 í Kópavogi.
Fannborg 6 í Kópavogi. Skjáskot af ja.is

Velferðarsvið Kópavogsbæjar er ekki lengur með starfsemi í Fannborg 6. Slæm loftgæði eru í húsinu sem haft hefur áhrif á starfsfólk hússins og sýna nýjustu mælingar há gildi myglugróar. Því eru ekki forsendur fyrir því að velferðarsvið starfi þar áfram.

Velferðarsvið Kópavogsbæjar er ekki lengur með starfsemi í Fannborg 6. Slæm loftgæði eru í húsinu sem haft hefur áhrif á starfsfólk hússins og sýna nýjustu mælingar há gildi myglugróar. Því eru ekki forsendur fyrir því að velferðarsvið starfi þar áfram.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Þá segir, að starfsfólk færist í heimavinnu eins og sakir standa en unnið sé að lausn húsnæðismála til lengri og skemmri tíma.

Símsvörun og móttaka erinda velferðarsviðs færist að Digranesvegi 1 frá og með mánudeginum 28. ágúst, segir enn fremur. 

mbl.is