Áform Svandísar ekki í samræmi við skýrsluna

Auðlindin okkar | 29. ágúst 2023

Áform Svandísar ekki í samræmi við skýrsluna

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segja frumvörp sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hyggst leggja fram, ekki vera í samræmi við efni og niðurstöður skýrslu um stefnumótun matvælaráðuneytisins í sjávarútvegi.

Áform Svandísar ekki í samræmi við skýrsluna

Auðlindin okkar | 29. ágúst 2023

SFS segja fá ný tíðindi í skýrslu sem matvælaráðherra kynnti …
SFS segja fá ný tíðindi í skýrslu sem matvælaráðherra kynnti í dag. Samsett mynd

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segja frumvörp sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hyggst leggja fram, ekki vera í samræmi við efni og niðurstöður skýrslu um stefnumótun matvælaráðuneytisins í sjávarútvegi.

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segja frumvörp sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hyggst leggja fram, ekki vera í samræmi við efni og niðurstöður skýrslu um stefnumótun matvælaráðuneytisins í sjávarútvegi.

„Annars vegar hyggst ráðherra leggja til hækkun á veiðigjaldi og hins vegar hyggst hún gera tilraunir með uppboð aflaheimilda. Hvorugt er lagt til af þeim sérfræðingum sem fóru fyrir vinnuhópum og rituðu um hlutaðeigandi efni í skýrslunni,“ segir í yfirlýsingu SFS.

Þá segir jafnframt í yfirlýsingu samtakanna að af þeim sökum megi hafa efasemdir um að ráðherra hafi nokkurn tíma haft í hyggju að hlíta niðurstöðum í skýrslu sem ekki eru í samræmi við pólitíska sýn ráðherrans.

Fá ný tíðindi

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti í dag skýrsluna þar sem finna má til­lög­ur um breyt­ing­ar á fisk­veiðistjón­un­ar­kerf­inu sem hugsað er að verði grund­völl­ur frum­varps að nýj­um heild­ar­lög­um um fisk­veiðar.

SFS telja miður að skýrslan víki ekki að samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og stöðu hans í keppni við fiskveiðar annarra þjóða.

„Þar liggur stærsta áskorunin nú og í framtíð. Hin títtnefnda sátt í sjávarútvegi verður varla til umræðu ef Íslendingar verða undir á erfiðum útivelli og engin verða þá verðmætin til skiptana,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá telja samtökin að skýrslan færi fá ný tíðindi og að skýrslur hafi áður verið skrifaðar um sama efni. 

Nefna samtökin þrennt í því samhengi:

  • Íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið, þar sem aflamarki er úthlutað til aðila með varanlegar og framseljanlegar veiðiheimildir, er að mati skýrsluhöfunda það kerfi sem best er talið og skilað hefur miklum verðmætum til íslensks samfélags.
  • Enn er á það minnt í skýrslunni að innköllun og uppboð aflaheimilda, sem oft er ranglega kallað markaðsleið, hafi í öllum meginatriðum mistekist í þeim ríkjum sem reynt hafa.
  • Ráðstöfun ríkisins á 5,3% aflaheimilda í ýmis konar verkefni, líkt og strandveiðar, byggðapotta og ívilnanir er í öllum verulegum atriðum, samkvæmt umfjöllun skýrslunnar, án ásættanlegs árangurs eða efnahagslegs ábata.
mbl.is