Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun leggja til við Alþingi að veiðigjöld sem lögð er á sjávarútveginn verði hækkuð. Tilkynnti hún þetta í ræðu sinni vegna kynningar á tillögum starfshópa stefnumótunarverkefnisins Auðlindin okkar um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem fram fór í dag á Hilton Reykjavík Nordica.

Benti Svandís meðal annars á vantraust almennings til sjávarútvegsins og að ósk væri um „sanngjarnari“ skiptingu tekna af nýtingu sjávarauðlindarinnar. Kvaðst hún vilja að „almenningur fái sýnilegri hlutdeild í afkomu við nýtingu sjávarauðlindarinnar.“ Útfærslan hafi þó ekki verið frá gengin.
Þá tilkynnti matvælaráðherra að stefnt verði að því að gera tilraun með uppboð veiðiheimilda í samræmi við tillögur starfshópa verkefnisins þess efnis. Sagði Svandís mikilvægt að stíga þetta skref í þeim tilgangi að varpa betur ljós á hvernig verð myndast í sjávarútvegi.
Aflaheimildirnar sem boðnar verða upp til leigu í tíu ár verða fengnar af þeirri hlutdeild sem fellur í hlut ríkisins á hverju ári (5,3%) sem nú er skilgreint í lögum sem atvinnu- og byggðakvóti. Þá mun – verði af umræddri tilraun – fjármunum sem aflast með þessari leið veitt byggðarlögum sem hafa til þessa fengið almennan byggðakvóta til ráðstöfunar.
Tillögurnar sem starfshóparnir leggja til í endanlegri skýrslu sinni sem kynnt var í dag eru 30 talsins og eru því helmingi færri en þær 60 sem kynntar voru sem bráðabirgðatillögur í vor, en margar þeirra rúmast innan þeirra tillagna sem nú hafa verið kynntar.
Í samræmi við tillögurnar kvaðst Svandís ætla að leggja til að atvinnu- og byggðakvótakerfið verði stokkað upp og að almennur byggðakvóti, línuívilnun sem og skel- og rækjubætur verði lagðar af. „Aðstæður og áskoranir hafa breyst […] og þessi úrræði þjóna ekki lengur nógu vel þeim tilgangi sem þeim var ætlað. Þeim heimildum sem nú er ráðstafað í þau kerfi verða leigðar út eða ráðstafað með öðrum hætti, mögulega til annarra úrræða í byggðakerfunum. Byggðakvóta Byggðastofnunar og strandveiðum verði haldið við en með breyttri framkvæmd samanber strandveiða þessa sumars sem er að líða.“
Fréttin hefur verið uppfærð.