Sænska fyrirsætan Hanna Schönberg er stödd á Íslandi um þessar mundir, en hún hefur notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum á undanförnum árum og er að mati margra með best klæddu áhrifavöldum í skandinavíu.

Schönberg birti nokkrar myndir frá fyrsta deginum sínum á Íslandi á Instagram-reikningi sínum í gær, en af myndum að dæma virðist hún hafa eytt deginum á Suðurlandi og fór meðal annars að Seljalandsfossi og á Reynisfjöru.
Fyrirsætan segist vera í þriggja daga vinnuferð á Íslandi og að hún sé í tökum fyrir spennandi verkefni sem komi betur í ljós um miðjan september. Hún virtist heilluð af náttúrufegurðinni sem landið hefur upp á að bjóða.