Segja vinnubrögð ráðherra „forkastanleg“

Auðlindin okkar | 3. september 2023

Segja vinnubrögð ráðherra „forkastanleg“

Félagasamtök smábátaeigenda, strandveiðimanna, fiskframleiðenda og útflytjenda segja vinnubrögð Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra „forkastanleg“ þar sem þau hafi ekki fengið að koma athugasemdum á framfæri við gerð skýrslu starfshópa Auðlindarinnar okkar.

Segja vinnubrögð ráðherra „forkastanleg“

Auðlindin okkar | 3. september 2023

„Vinnubrögðin eru forkastanleg og kallar fram spurninguna hvert var hlutverk …
„Vinnubrögðin eru forkastanleg og kallar fram spurninguna hvert var hlutverk samráðsnefndarinnar þar sem skýrslan sem kynnt hefur verið er ekki hennar verk,“ segir í tilkynningunni. Ljósmynd/Aðsend

Félagasamtök smábátaeigenda, strandveiðimanna, fiskframleiðenda og útflytjenda segja vinnubrögð Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra „forkastanleg“ þar sem þau hafi ekki fengið að koma athugasemdum á framfæri við gerð skýrslu starfshópa Auðlindarinnar okkar.

Félagasamtök smábátaeigenda, strandveiðimanna, fiskframleiðenda og útflytjenda segja vinnubrögð Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra „forkastanleg“ þar sem þau hafi ekki fengið að koma athugasemdum á framfæri við gerð skýrslu starfshópa Auðlindarinnar okkar.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landssambandi smábátaeigenda (LS), Strandveiðifélagi Íslands (STÍ) og Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ). Kynning á skýrslunni hafi endurspeglað það „fullkomlega“ en þar voru boðuð hærri veiðigjöld og uppboð heimilda.

Spyrja um tilgang samráðsins

Ráðherra skipaði starfshópa til að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum auk samráðsnefndar, sem samtökin voru boðin að taka sæti í.

„Við ákváðum að þiggja setu í „samráðsnefndinni“ í þeirri von að á okkur yrði hlustað og áherslur okkar myndu koma fram í skýrslu starfshópanna,“ segir þar en nú blasi við skýrsla frá starfshópum nefndarinnar. 

„Skýrsla sem ekki hefur verið kynnt í samráðsnefndinni hvað þá að leitað hafi verið eftir athugasemdum nefndarinnar við hana. Vinnubrögðin eru forkastanleg og kallar fram spurninguna hvert var hlutverk samráðsnefndarinnar þar sem skýrslan sem kynnt hefur verið er ekki hennar verk.“

mbl.is