Tónlistarkonan Dua Lipa afhjúpaði á dögunum leyndarmálið að stórkostlegu kynlífi. Ástarlíf Lipa hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarin ár, en tónlistarkonan vakti mikla athygli í sumar þegar hún frumsýndi nýju ástina á rauða dreglinum, ekki síst vegna þess að 14 ára aldursmunur er á parinu.

Lipa heldur úti vikulegum hlaðvarpsþáttum, en í nýlegum þættinum opnaði hún sig um rómantísk sambönd sín og ræddi meðal annars um kynlíf. Hún viðurkenndi í þættinum að hún teldi að pör yrðu að vera fullkomlega heiðarleg um hvað þau þurfa kynferðislega tl að samband virki.
„Að tala ekki um kynlíf við manneskjuna sem þú stundar kynlíf með er undarlegt að mínu mati. Ég held að það sé mikilvægt að eiga samtal um kynlíf og gefa það að umræðuefni sem við getum talað frjálslega um, en þannig getum við sleppt sektarkenndinni og skömminni sem umlykur það,“ sagði Lipa.
Tónlistarkonan segir leyndarmálið að hamingjusömu sambandi sem endist vera að finna skemmtun hvort í öðru og finna leiðir til að halda áfram að vera forvitinn um maka sinn.
„Svo mikið af því sem ég les um sambönd þessa dagana snýst um „herbergisfélagastigið“ (e. roommate phase) þar sem þér líður eins og þið búið saman en eruð ekki lengur í rómantískum tengslum,“ sagði Lipa.