Frumsýningu þáttanna True Detective: Night Country hefur verið frestað til næsta árs. Þættirnir voru teknir upp hér á Íslandi síðasta vetur. Ekki liggur fyrir af hverju frumsýningu þeirra hefur verið frestað.

Í umfjöllun Deadline er bent á að frumsýningu fjölda kvikmynda og þátta hafi verið frestað vegna verkfalla handritshöfunda og leikara.
Þættirnir, sem Jodie Foster fer með aðalhlutverk í, áttu að fara í sýningu á þessu ári en nú eru þeir á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar HBO á næsta ári.