Fyrrverandi forsetaframbjóðendur komu saman í Grósku

Hverjir voru hvar | 7. september 2023

Fyrrverandi forsetaframbjóðendur komu saman í Grósku

Hátíðarsalur Grósku var þéttsetinn af frumkvöðlum, fjárfestum og mentorum úr sprotasamfélaginu þegar Halla Tómasdóttir og Andri Snær Magnason, rithöfundar og fyrrverandi forsetaframbjóðendur, leiddu saman krafta sína á ný og ræddu hvernig hægt væri að breyta samfélaginu til hins betra. 

Fyrrverandi forsetaframbjóðendur komu saman í Grósku

Hverjir voru hvar | 7. september 2023

Halla Tómasdóttir og Andri Snær Magnússon ræddu um hugrekki sprota …
Halla Tómasdóttir og Andri Snær Magnússon ræddu um hugrekki sprota og frumkvöðla í þéttsetnum hátíðarsal Grósku. Samsett mynd

Hátíðarsalur Grósku var þéttsetinn af frumkvöðlum, fjárfestum og mentorum úr sprotasamfélaginu þegar Halla Tómasdóttir og Andri Snær Magnason, rithöfundar og fyrrverandi forsetaframbjóðendur, leiddu saman krafta sína á ný og ræddu hvernig hægt væri að breyta samfélaginu til hins betra. 

Hátíðarsalur Grósku var þéttsetinn af frumkvöðlum, fjárfestum og mentorum úr sprotasamfélaginu þegar Halla Tómasdóttir og Andri Snær Magnason, rithöfundar og fyrrverandi forsetaframbjóðendur, leiddu saman krafta sína á ný og ræddu hvernig hægt væri að breyta samfélaginu til hins betra. 

Á dögunum gaf Halla út bókina Hugrekki til að hafa áhrif og var innihald hennar til umræðu, en í bókinni deilir Halla reynslu úr lífi og starfi sem og sögum af fyrirtækjum og fólki sem hefur virkjað krafta sína til góðra verka og þannig náð bæði miklum árangri og fundið innri gleði.

Andri Snær hefur verið óhræddur að leggja til atlögu við viðtekin viðhorf í samfélaginu og heiminum. Með bókum sínum Draumalandið og Um tímann og vatnið hefur hann sett stór náttúruverndar- og umhverfismál í samhengi, gefið fólki orðfæri til að skilja og tjá tilfinningar sínar og hugsanir og eflt það til þátttöku í umræðum sem leiða til aðgerða.

Spurningaflóð og líflegar umræður

Spurningar dundu á þeim Höllu og Andra úr salnum og sköpuðust afar líflegar umræður um frumkvöðlastarf, mikilvægi gilda og þess að hafa eigin áttavita til að fylgja þegar taka þarf erfiðar ákvarðanir og hafa úthald í erfið verkefni. 

„Ég hef þá einlægu trú að allar framfarir byrji með einni manneskju sem hefur hugrekki til að hafa áhrif og fær fleiri með sér í lið. Um þetta snýst frumkvöðlastarfsemi, að virkja krafta sína til að leysa samfélagsleg vandamál og verkefni í samstarfi við aðra. Einstaklingar og fyrirtæki sem leggja af stað í slíka vegferð með skýra sýn á sinn tilgang og gildi ná lengra, skila betri arðsemi til lengri tíma litið og leggja meira af mörkum til framþróunar okkar samfélags, sem sannarlega þarf á hugrekki að halda til að hugsa svo margt uppá nýtt,” sagði Halla

„Ég var mjög hræddur þegar Draumalandið kom út. Ég vissi að ég var að storka sterkum öflum í samfélaginu og vissi ekkert hver viðbrögðin yrðu. En ég fann að ég varð að segja þessa sögu,” sagði Andri Snær um þá áskorun að ganga gegn ríkjandi viðhorfum.

„Ef við veljum að taka þátt, gera gagn og láta gott af okkur leiða, þá eru í reynd okkar björtustu tímar framundan. Þegar ég hlusta á alla þessa hugrökku leiðtoga sem eru saman komin hér í Grósku, þá veit ég að framtíðin er björt,” sagði Halla.

Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
mbl.is