Jón Gauti Jónsson sigraði ljósmyndakeppni ferðavefs mbl.is á dögunum með ljósmyndinni Ferðalangur í eigin heimi í Kerlingarfjöllum. Jón Gauti starfar sem verkefnastjóri hjá fyrirtækinu Íslensk fjárfesting en nýtur þess í frítíma sínum að fara á fjöll með myndavélina allt árið um kring.

„Ég er áhugaljósmyndari og er búinn að vera að taka myndir í einhver fjögur eða fimm ár og mikið úti í náttúrunni. Myndavélin drífur mann oft út að reyna að fanga ákveðin augnablik, sérstaklega ef maður er með einhverja hugmynd af mynd. Ég hef mikið verið að flækjast um hálendið og náttúruna með myndavél og reynt að smella áhugaverðum römmum, en svo fer maður líka í sérstakar ferðir til að ná ákveðnum myndum,“ segir Jón Gauti.
Verðlaunamyndina tók Jón Gauti á ferðalagi sínu um Kerlingarfjöllin, en hann hefur ferðast nokkuð oft um þær slóðir og segist þarna hafa náð að fanga einstakt augnablik fyrir hálfgerða heppni.
„Ég hef ferðast nokkuð oft um Kerlingarfjöllin og maður sér oft myndir þaðan frá sömu sjónarhornunum. En þarna voru aðstæðurnar aðeins öðruvísi – annað sjónarhorn og falleg lýsing, en svo er akkúrat einhver erlendur ferðamaður þarna sem lítur út fyrir að vera í þungum þönkum eða í sínum heimi. Þannig að stundum er maður bara heppinn með stund og stað,“ útskýrir hann.
„Þarna er bæði öðruvísi og fallegt umhverfi en svo er það þessi einstaklingur sem setur svolítið stemninguna í myndina,“ bætir hann við.
Jón Gauti hefur stundað fjallamennsku í mörg ár og hefur gengið mikið víðsvegar um landið, bæði í styttri og lengri ferðum. Spurður hvort hann eigi sér uppáhaldsgönguleið á Íslandi svarar Jón Gauti að hann eigi erfitt að gera upp á milli, enda hafi hver staður sinn sjarma.
„Það er bara svo ótrúlega mikið af fallegum stöðum á Íslandi og maður hefur þvælst út og suður, svo það er hálf vonlaust að velja á milli. Það er eiginlega alveg sama hvar þú drepur niður fæti, hver staður hefur ákveðinn karakter og sjarma,“ segir hann.
Jón Gauti segir marga af fegurstu stöðum landsins vera á jöklum og í kringum jökla, en einnig á háhitasvæðum þar sem litadýrðin fangar augað. „Ég fer líka mikið á Reykjanesið sem er leynd náttúruperla. Það eru margir fallegir staðir þar sem eru mjög aðgengilegir en Íslendingurinn fer kannski minna á, en maður tekur mikið eftir erlendum ferðamönnum nú orðið á Reykjanesinu,“ segir hann.
„Svo er líka eitt að vera í sól og sumaryl og annað að vera í drungalegra veðri og kulda, það er önnur stemning sem hefur samt sinn sjarma,“ bætir hann við.
Fyrir verðlaunamyndina hlaut Jón Gauti veglegan vinning í Fjallakofanum sem hann segir að muni nýtast vel, enda nóg af skemmtilegum ferðalögum framundan hjá honum.