Ný fiskveiðilög fyrir Alþingi í janúar

Auðlindin okkar | 14. september 2023

Ný fiskveiðilög fyrir Alþingi í janúar

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hyggst leggja fyrir Alþingi frumvarp um ný heildarlög um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar í janúar samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar sem dreift var til þingmanna á þirðjudag.

Ný fiskveiðilög fyrir Alþingi í janúar

Auðlindin okkar | 14. september 2023

Tillögur starfshópa verkefnisins Auðlindin okkar voru kynntar í ágúst. Svandís …
Tillögur starfshópa verkefnisins Auðlindin okkar voru kynntar í ágúst. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra áætlar að leggja fram frumvarp byggt á tillögunum í janúar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hyggst leggja fyrir Alþingi frumvarp um ný heildarlög um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar í janúar samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar sem dreift var til þingmanna á þirðjudag.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hyggst leggja fyrir Alþingi frumvarp um ný heildarlög um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar í janúar samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar sem dreift var til þingmanna á þirðjudag.

Um er að ræða ný heildarlög sem byggja á þeim tillögum að breytingum sem sem lagt hefur verið til að gerðar verði á núgildandi lögum undir merkjum stefnumótunarverkefnisins Auðlindin okkar. Gert er ráð fyrir að ný heildarlög komi í stað fjölda eldri laga og sé þannig til þess fallin að einfalda og uppfæra núgildandi löggjöf, auk þess að tryggja betri yfirsýn um þær reglur sem gilda um nýtingu sjávarauðlindarinnar.

Áformin hafa hlotið nokkra gagnrýni meðal annars af hálfu strandveiðisjómanna sem segja tillögur Auðlindarinnar okkar ekki til þess fallnar að efla strandveiðar. Auk þess hefur Landssamband smábátaeigenda gagnrýnt hugmyndur um aflagningu línuívilnunar.

Í byrjun september sendu sam­tök smá­báta­eig­enda, strand­veiðimanna, fisk­fram­leiðenda og út­flytj­enda frá sér yfirlýsingu þar sem vinnu­brögð Svandís­ar voru sögð „forkast­an­leg“ þar sem þeim þótti ekki hafa verið gefin kostur á að koma at­huga­semd­um á fram­færi við gerð skýrslu starfs­hópa Auðlind­ar­inn­ar okk­ar.

Einnig hafa Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi gagnrýnt áform ráðherra um að hefja tilraun með uppboð aflaheimilda sem ekki var meðal tillagna sem lagðar voru fram af starfshópum Auðlindarinnar okkar.

Birt voru áform um lagasetningu í samráðsgátt stjórnvalda 29. ágúst er snéru að nýjum heildarlögum. Frestur til að skila inn umsögn rennur út 26. september. enn hafa engar umsagnir borist samkvæmt skráningu gáttarinnar.

mbl.is