Sér eftir fyllingarefnum sem hún fékk sér ung

Snyrtivörur | 16. september 2023

Sér eftir fyllingarefnum sem hún fékk sér ung

Tónlistarkonan Ariana Grande sýndi aðdáendum sínum húðumhirðu- og förðunarrútínu sína á Youtube-síðu Vogue á dögunum, en myndskeiðið varð fljótt tilfinningaríkt þegar Grande viðurkenndi að hafa fengið sér mikið af fyllingarefnum í varirnar þegar hún var yngri. 

Sér eftir fyllingarefnum sem hún fékk sér ung

Snyrtivörur | 16. september 2023

Ariana Grande talaði opinskátt um reynslu sína af fyllingarefnum við …
Ariana Grande talaði opinskátt um reynslu sína af fyllingarefnum við Vogue. AFP

Tón­list­ar­kon­an Ari­ana Grande sýndi aðdá­end­um sín­um húðum­hirðu- og förðun­ar­rútínu sína á Youtu­be-síðu Vogue á dög­un­um, en mynd­skeiðið varð fljótt til­finn­inga­ríkt þegar Grande viður­kenndi að hafa fengið sér mikið af fyll­ing­ar­efn­um í var­irn­ar þegar hún var yngri. 

Grande barðist við tár­in þegar hún talaði af ein­lægni um reynslu sína af fyll­ing­ar­efn­um á yngri árum. „Fullt gagn­sæi, sem mann­eskja í förðun­ar­brans­an­um, ég hef fengið mér fullt af fyll­inga­efni í var­irn­ar í gegn­um árin og bótox. Ég hætti árið 2018 vegna þess að mér fannst það bara svo ... of mikið. Mér fannst bara eins og ég væri að fela mig,“ sagði hún. 

Förðunin sner­ist um að fela sig

„Í lang­an tíma sner­ist förðun um að fela mig og núna finnst mér eins og það sé kannski ekki þannig síðan ég hætti að fá fyll­ing­ar­efni og bótox,“ bætti hún við, en Grande var aðeins 16 ára göm­ul þegar hún öðlaðist heims­frægð og seg­ir sam­band henn­ar við förðun og feg­urð hafa breyst mikið síðan þá.

Grande tók þó fram að hún hefði ekki á móti því að fá sér fyll­ing­ar­efni eða bótox aft­ur ein­hver­tím­ann í framtíðinni, en í bili ætli hún að fagna vel áunn­um grátlín­um og bros­lín­um. 

mbl.is