Fyrrverandi körfuboltakappinn Lamar Odom slapp furðu vel þegar hann missti stjórn á ökutæki sínu, hvítum Mercedes Benz, og keyrði á tvo kyrrstæða bíla snemma morguns í síðustu viku.

TMZ greinir frá því að Odom hafi verið á heimleið frá vini sínum í Norhridge í Kaliforníu um þrjúleytið þegar hann hafi misst farsímann sinn. Þegar hann hafi teygt sig eftir símanum hafi hann hins vegar misst stjórn á bílnum og keyrt á bílana tvo.
Odom hefur oft lent í vandræðum vegna áfengis- og fíkniefnavanda, en hann fannst meðvitundalaus í vændishúsi í október 2015 og lá lengi á sjúkrahúsi og var vart hugað líf. Fram kemur að lögreglan hafi spurt Odom hvort hann hafi keyrt undir áhrifum áfengis eða fíkniefna sem hann neitaði.
Engin slys urðu á fólki, en eins og sjá má á myndum sem birtust á TMZ varð ökutæki Odoms fyrir þó nokkrum skemmdum og sömuleiðis bílarnir tveir sem hann keyrði á.