Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir hjá Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá manneskju sem veltir fyrir sér hvað hægt sé að gera til þess að koma í veg fyrir sortuæxli.

Sæl Jenna.
Ein í fjölskyldunni var að greinast með sortuæxli. Hvað er sortuæxli og hvað getur maður gert til að koma í veg fyrir það? Er það hættulegt?
Kveðja,
NB
Sæl NB.
Sortuæxli er alvarlegasta gerð húðkrabbameina og leggst einkum á húðsvæði sem verða fyrir miklu sólarljósi. Sortuæxli getur verið hættulegt ef greint of seint en auðvelt að lækna greinist það á byrjunarstigi.
Sortuæxligeta myndast alls staðar á líkamanum. Fyrstu einkenni um sortuæxli eru yfirleitt:
Hvað veldur sortuæxli?
Sortuæxli verður til þegar eitthvað fer úrskeiðis í litafrumum (e. melanocytes) húðarinnar. Undir eðlilegum kringumstæðum er þroskaferli fruma húðarinnar mjög vel stjórnað og skipulagt þar sem nýrri frumur ýta eldri frumum upp um ytri lög húðarinnar þannig á endanum deyja þær og detta af. Ef einhver af þessum frumum hefur orðið fyrir genaskaða, eins og t.d. við sólbruna, þá geta þær frumur farið að vaxa óeðlilega og myndað húðkrabbamein. Einn helsti skaðvaldurinn á erfðaefni húðfrumnanna er útfjólubláa geislunin frá sólinni. Þessa útfjólubláa geislun er einnig að finna í ljósabekkjum og hefur Alþjóða heilbrigðisstofnunin skilgreint bæði sólarljós og ljósabekki sem þekkta krabbameinsvalda eins og t.d. reykingar. En þar sem sortuæxli geta einnig komið á húð þar sem ekkert sólarljós nær til, t.d. við endaþarm og á milli táa, er alveg klárt að aðrir þættir eins og erfðir hafa einnig áhrif á þróun sjúkdómsins.
Þekktir áhættuþættir:
Hvernig getum við komið í veg fyrir sortuæxli og önnur húðkrabbamein?
Kær kveðja,
Jenna Huld Eysteinsdóttir
Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Jennu Huld spurningu HÉR.