Rannsókn á máli knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar, leikmanns Genoa á Ítalíu, er lokið og það komið á borð ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Bylgja Hrönn Baldursdóttir, lögreglufulltrúi hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti tíðindin í samtali við Vísi.
Albert, sem er 26 ára gamall, var kærður fyrir kynferðisbrot þann 22. ágúst og var ekki með íslenska karlalandsliðinu í nýliðnum landsleikjaglugga af þeim sökum.
Málið verður nú sent á borð ríkissaksóknara sem tekur svo ákvörðun um hvort Albert verði ákærður eða málið látið niður falla.