„Hvor er að segja ósatt? Er það hæstvirtur matvælaráðherra sem er að segja ósatt eða er það forstjóri Samkeppniseftirlitsins?“ spurði Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, sem bar fram ásakanir um ósannindi í ræðustól á Alþingi fyrr í dag.

Greint var frá því á mbl.is í gær að dagsektir Samkeppniseftirlitsins á sjávarútvegsfyrirtækið Brim, sem námu 3,5 milljónum króna, væru ólöglegar og ákvörðun SKE frá því í júlí felld úr gildi af áfrýjunarnefnd samkeppnismála.
Fram kom í tilkynningu frá SKE í dag að gengnum úrskurði áfrýjunarnefndar lítur Samkeppniseftirlitið svo á að forsendur séu brostnar fyrir samningi Samkeppniseftirlitsins við matvælaráðuneytið og mun óska eftir viðræðum við ráðuneytið um lok hans.
„Það er langt síðan viðlíka rassskelling hefur verið birt á heimasíðu opinberra stjórnvalda,“ segir Bergþór um niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Í ræðustól benti hann á að samkvæmt samkeppnislögum væri ekki gert ráð fyrir því að SKE gerði sérstaka samninga við aðra aðila um einstakar athuganir stofnunarinnar eða tilhögun þeirra sem leiða til þess að stofnunin skili niðurstöðum sínum til þeirra í formi skýrslna gegn greiðslum.
„Þetta er með miklum ólíkindum með hvaða hætti þetta mál hefur unnist áfram. Samningur sem matvælaráðuneytið gerði við Samkeppniseftirlitið um sérstakan erindisrekstur til að undirbyggja pólitíska stefnumótun ráðherra, blasti við, held ég, flestum að gæti ekki gengið upp í því samfélagi sem við byggjum, enda tekur úrskurðurinn býsna skýra afstöðu í þessum efnum,“ segir þingmaðurinn.
„Það liggur fyrir í gögnum málsins að matvælaráðuneytið hafði frumkvæði að þessum samningi,“ segir Bergþór en Morgunblaðið varpaði á það ljósi á dögunum.
Þá vitnar þingmaðurinn í yfirlýsingu SKE frá því í dag. Segir hann að þar standi að SKE hafi tekið „sjálfstæða ákvörðun um að hefja athugun á stjórnunar- og eignatengslum í sjávarútvegi“.
Með tilliti til þessa sé þá annað hvort matvælaráðherra eða Samkeppniseftirlitið að fara með ósannindi.
„Ég held að við verðum að draga það fram hér í þinginu hvor er að segja ósatt? Er það hæstvirtur matvælaráðherra sem er að segja ósatt eða er það forstjóri Samkeppniseftirlitsins? Annar hvor aðilinn er það, önnur niðurstaða er útilokuð,“ spyr Miðflokksmaðurinn að lokum.