Lilja tjáir sig ekki um SKE

Kortlagning eignatengsla | 22. september 2023

Lilja tjáir sig ekki um SKE

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, viðskipta- og menningarráðherra tjáir sig ekki um ólögmætar dagsektir Samkeppniseftirlitsins (SKE) á sjávarútvegsfyrirtkæði Brim. Málið er í skoðun í ráðuneytinu.

Lilja tjáir sig ekki um SKE

Kortlagning eignatengsla | 22. september 2023

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, viðskipta- og menningarráðherra tjáir sig ekki um ólögmætar dagsektir Samkeppniseftirlitsins (SKE) á sjávarútvegsfyrirtkæði Brim. Málið er í skoðun í ráðuneytinu.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, viðskipta- og menningarráðherra tjáir sig ekki um ólögmætar dagsektir Samkeppniseftirlitsins (SKE) á sjávarútvegsfyrirtkæði Brim. Málið er í skoðun í ráðuneytinu.

„Ég tjái mig ekki um það fyrr en það er búið að skoða það frekar. En það er í skoðun,“ sagði Lilja í samtali við mbl.is, stuttu eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Málið var á dagskrá fundarins.

Svo sem frá hef­ur verið greint hef­ur áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála fellt úr gildi ólög­mæt­ar dag­sekt­ir sem eft­ir­litið lagði á Brim, í tengslum við athugun á stjórn­un­ar- og eigna­tengsl­um í sjávarútvegi.

Sektin var ólögmæt sök­um þess að samn­ing­ur SKE við mat­vælaráðuneytið um téða rann­sókn sam­ræm­ist ekki hlut­verki eftirlitsins sem því er fengið í sam­keppn­is­lög­um.

Í ljósi ólögmæti sektanna, krefst sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið G. Run. nú þess að SKE af­hendi fyr­ir­tæk­inu öll þau gögn og upp­lýs­ing­ar sem það hef­ur látið eft­ir­lit­inu í té vegna athugunarinnar.

Þá hafa Samtök atvinnulífsins einnig sagt að eftirlitið verði að gæta meðalhófs.

mbl.is