Sýnir líkamann eftir þyngdartap

Instagram | 23. september 2023

Sýnir líkamann eftir þyngdartap

Real Housewives of Orange County-stjarnan Emily Simpson hét því að breyta lífsháttum sínum fyrir nokkrum árum þar sem henni fannst hún orðin of þung.

Sýnir líkamann eftir þyngdartap

Instagram | 23. september 2023

Emily Simpson sagðist samt vera ánægð með sig og líkama …
Emily Simpson sagðist samt vera ánægð með sig og líkama sinn alltaf. Samsett mynd

Real Housewives of Orange County-stjarnan Emily Simpson hét því að breyta lífsháttum sínum fyrir nokkrum árum þar sem henni fannst hún orðin of þung.

Real Housewives of Orange County-stjarnan Emily Simpson hét því að breyta lífsháttum sínum fyrir nokkrum árum þar sem henni fannst hún orðin of þung.

Fyrr í vikunni birti raunveruleikastjarnan myndskeið á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hún sýndi árangur vinnu sinnar.

Simpson viðurkenndi fyrir fylgjendum sínum að hafa grennst með hjálp „töfralyfsins“ Ozempic og fitusogs, en segir þó daglegar ferðir í ræktina helstu ástæðu þyngdartapsins. 

Raunveruleikastjarnan hefur verið dugleg að skrásetja þyngdartap sitt síðastliðna mánuði á samfélagsmiðlum, en í desember viðurkenndi Simpson að hafa notað Ozempic til að ná af sér fyrstu aukakílóunum. Simpson sagðist einnig hafa gengist undir aðgerð og farið í fitusog á handleggjum. 



mbl.is