Á dögunum skoraði Vilhelm Þór Neto, leikari og grínisti, á vin sinn Atla Sigurðarson matgæðing með meiru, að taka við keflinu af sér og ljóstrar upp sínum uppáhaldsrétti. Atli tók áskoruninni fagnandi og ljóstrar hér upp sínum uppáhaldsrétti, hinum leyndardómsfulla karrírétti sem hefur fylgt honum frá bernsku.
Á dögunum skoraði Vilhelm Þór Neto, leikari og grínisti, á vin sinn Atla Sigurðarson matgæðing með meiru, að taka við keflinu af sér og ljóstrar upp sínum uppáhaldsrétti. Atli tók áskoruninni fagnandi og ljóstrar hér upp sínum uppáhaldsrétti, hinum leyndardómsfulla karrírétti sem hefur fylgt honum frá bernsku.
Á dögunum skoraði Vilhelm Þór Neto, leikari og grínisti, á vin sinn Atla Sigurðarson matgæðing með meiru, að taka við keflinu af sér og ljóstrar upp sínum uppáhaldsrétti. Atli tók áskoruninni fagnandi og ljóstrar hér upp sínum uppáhaldsrétti, hinum leyndardómsfulla karrírétti sem hefur fylgt honum frá bernsku.
Atli hefur verið önnum kafinn undanfarið og er að takast á við ný og spennandi verkefni. „Ég er nýbúinn að klára meistaranámið í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands, og bíð bara eftir að fá skírteinið í hendurnar nú í lok október. Ég var svo heppinn að fá mjög spennandi starf við sjá um markaðsmálin hjá Stórkaup sem er nýjasta viðbótin í Haga fjölskyldunni ef mér skjátlast ekki, ég ætti að vera með þetta á hreinu. Margir hugsa eflaust um gömlu Stórkaups verslunina í Skeifunni þar sem var hægt að kaupa kjúklingaspjót og kokteilsósu í eins lítra flöskum. Þetta er hins vegar nýtt batterí en það var ákveðið að endurnýta nafnið góða. Stórkaup þjónustar núna einungis rekstraraðila og er með alveg ótrúlegt úrval af aðföngum. Við erum með allt frá bleium fyrir leikskóla og upp í sjálfvirka gólfþvottaróbóta sem skúra heilu vöruhúsin. Þarna hlýtur að vera eitt breiðasta vöruúrval landsins,“ segir Atli og er spenntur fyrir komandi tímum í vinnunni.
Hefur þú ávallt haft gaman að því að matreiða og baka?
„Það eru um það bil tíu ár síðan að matreiðsla varð að áhugamáli hjá mér. Ég missti mig í að horfa á matreiðsluþætti og annað tengt matargerð þegar ég var í menntaskóla. Ég fór þá að hafa gaman að því elda eitthvað gott fyrir sjálfan mig og aðra. Það er fátt meira gefandi en að halda gott matarboð.“
Hvar færðu innblásturinn þegar kemur að því að matreiða?
„Ég væri eiginlega að ljúga ef ég segði að innblásturinn kæmi frá vel völdum fjölskyldumeðlimum. Ég held að þetta hafi allt byrjað með Masterchef þáttunum. Þá fyrst fannst mér geðveikt kúl að geta gert eitthvað geðveikt úr einhverju drasli sem kom upp úr Bónus poka,“ segir Atli og hlær. „Ég er algjör hákur á matreiðsluþætti og verð stundum háður ákveðnum mat ef ég sé eitthvað spennandi í sjónvarpinu. Til að mynda þegar ég horfði á Ugly Delicious þáttinn um pítsur, keypti ég mér í framhaldinu pítsaofn og ákvað að borða pítsu í kvöldmatinn í heila viku eingöngu til þess að æfa mig í að gera pítsur. Ég er reyndar mikill græjukarl og það skilar sér inn í eldhúsið þar sem ég elska að versla mér allskonar missniðugt dót og drasl. Ég dýrka að skoða nýja potta og pönnur og annað sem ég verð einfaldlega að eignast, sem kærastan skilur ekkert í. Fyrir tveimur árum þurfti ég til að mynda nauðsynlega að fjárfesta í pastavél sem hefur komið upp úr kassanum þrisvar sinnum síðan. Við kærastan fórum reyndar á pastagerðarnámskeið í Róm fyrir nokkrum vikum svo vonandi fer pastavélin að sjást oftar í notkun“
Ertu til að svipta hulunni af þínum uppáhaldsréttur og sögunni bak við hann?
„Rétturinn sem ég ætla að ljóstra upp hefur fylgt mér frá barnæsku og í fjölskyldunni er hann þekktur undir nafninu „karrírétturinn með rækjunum“. Amma mín hefur gert þennan rétt í hartnær fimmtíu ár. Þetta er líklegast einhver úrkynjuð íslensk útgáfa af paellu með því sem var í boði hérna á þessum tíma þegar amma byrjaði að útbúa þennan rétt. Þessi réttur var í hverju einasta barnaafmæli innan fjölskyldunnar þegar ég var lítill en þegar barnaafmælunum fór fækkandi þá voru engin tilefni til þess að elda þennan rétt lengur. Ég held að ég hafi verið að borða þetta í fyrsta skipti í tíu ár þegar ég ákvað að henda í þennan rétt í vikunni. Mamma og systir hennar urðu svo spenntar þegar ég sagði þeim að ég ætlaði að fara að elda réttinn hennar ömmu að þær fóru og fundu uppskriftina í gamalli handskrifaðri uppskriftabók frá ömmu,“ segir Atli og er afar sæll með útkomuna.
„Þessi réttur hefur samt alltaf verið einhvers staðar aftast í huga mér sem leiddi til þess að ég tók tveggja ára tímabil þar sem ég fékk mér ávallt karríbát með rækjum á Nonnabita í Hafnarstræti (RIP) þegar ég var á djamminu. Það kallaði fram ákveðna nostalgíu.“
Á hvern viltu skora næst til að taka við keflinu af þér og svipta hulunni af sínum uppáhalds rétti fyrir lesendum matarvefsins?
„Ég ætla að skora á vinkonu mína, sagnfræðinginn og sögukennarann, Nönnu Kristjánsdóttur matgæðings af Guðs náð.“
Karrírétturinn með rækjum
Aðferð: