Ógnarstjórn og einelti SKE

Brim | 28. september 2023

Ógnarstjórn og einelti SKE

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Brims, telur að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra sé komin langt út fyrir stjórnarsáttmála með boðun nýrra heildarlaga um stjórn fiskveiða. Hann er þó hálfu harðorðari um stjórnsýslu Samkeppniseftirlitsins (SKE) í viðtali við Dagmál.

Ógnarstjórn og einelti SKE

Brim | 28. september 2023

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, var gestur Andrésar Magnússonar í Dagmálum.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, var gestur Andrésar Magnússonar í Dagmálum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Brims, telur að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra sé komin langt út fyrir stjórnarsáttmála með boðun nýrra heildarlaga um stjórn fiskveiða. Hann er þó hálfu harðorðari um stjórnsýslu Samkeppniseftirlitsins (SKE) í viðtali við Dagmál.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Brims, telur að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra sé komin langt út fyrir stjórnarsáttmála með boðun nýrra heildarlaga um stjórn fiskveiða. Hann er þó hálfu harðorðari um stjórnsýslu Samkeppniseftirlitsins (SKE) í viðtali við Dagmál.

Í viðtalinu er farið í saumana á ólögmætri athugun og dagsektum Samkeppniseftirlitsins (SKE) á Brim, sem áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi í fyrri viku.

„Ég vildi að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) færu í þetta fyrir okkur, en það virðist vera þannig að Páll Gunnar [Pálsson forstjóri] og SKE sé ógnarstjórn í samfélaginu. Það þorir enginn að anda á hann. […] Ég upplifi það þannig að ef einhver segir eitthvað við Samkeppniseftirlitið, þá er hann lagður í einelti, og það þorir enginn að segja neitt.“

Nánar í Morgunblaðinu í dag, fimmtudag. Viðtalið má horfa á í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér að ofan.

mbl.is