Allir fremstu matreiðslumenn heims koma saman á Ólympíuleikum matreiðslu í Stuttgart í Þýskalandi í byrjun febrúar 2024 og keppa um stærstu verðlaun keppnismatreiðslu. Eins og fram hefur komið á matarvef mbl.is hefur íslenska kokkalandsliðið hefur æft stíft undanfarna mánuði í tengslum við keppni þessa og stefnir á verðlaunapall. Ólympíuleikarnir verða settir 3. febrúar nk. og mun íslenska kokkalandsliðið keppa í tveimur greinum. Fyrri keppnisgreinin er „Chef´s table“, tólf manna 11 rétta matseðill og í hinni síðari þarf að afgreiða þriggja rétta matseðil fyrir 110 manns.

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir landsliðsþjálfari segir ekkert annað en verðlaunasæti koma til greina. Hópurinn samanstandi af reynslumiklu keppnisfólki sem og einstaklingum sem eru að fara að keppa á sínu fyrsta stórmóti. Snædís hefur lengi verið tengd keppnismatreiðslu en hún tók að sér þjálfun liðsins fyrr á þessu ári. „Við ætlum okkur alla leið, þessi hópur er tilbúinn að leggja gríðarlega mikið á sig til að ná sem bestum árangri,“ segir Snædís og bendir á að æfingar fari fram aðra hverja viku, þrjá til fjóra daga í senn þar sem hver æfing er um tíu til fjórtán klukkustundir.
Hópurinn sem fer til Stuttgart er jafnframt leiddur af Ísaki Aroni Jóhannssyni fyrirliða en hann starfar hjá Zak veitingum og hefur mikla keppnisreynslu. Hann hefur verið í landsliðshópnum síðan 2019. Hann bar sigur úr býtum í keppninni um eftirrétt ársins 2022 og varð í fjórða sæti í keppninni um kokk ársins sama ár.
Aðrir í hópnum eru eftirfarandi:
Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara, sem á og rekur kokkalandsliðið, segir að miklar væntingar séu gerðar til hópsins. „Hópurinn samanstendur af hæfileikaríku matreiðslufólki með frábæran þjálfara, sem á eftir að ná langt,“ segir Þórir og bætir við að ótrúlegt sé að fylgjast með eljunni og metnaði allra sem að koma, þar sem takmarkið sé að ná á verðlaunapall. „Að vera með landslið sem aftur og aftur sannar sig í að vera meðal þeirra bestu væri ekki hægt nema fyrir frábæran stuðning bakhjarla og styrktaraðila, þeir gera okkur þetta kleift,“ segir Þórir um leið og hann þakkar öllum þeim sem koma að starfi kokkalandsliðsins fyrir þeirra framlag.