Andrés prins þarf ekki að flytja úr Royal Lodge eins og til hafði staðið. Karl kóngur og Andrés prins hafa komist að samkomulagi um að hann megi vera áfram í Royal Lodge um ókomna framtíð. Hann þarf hins vegar að tryggja það að hann eigi fyrir viðgerðakostnaði á þaki hússins sem talinn er nema tveimur milljónum punda en Royal Lodge er 30 herbergja setur sem dýrt er að halda við.

Karl vildi eindregið að Andrés prins flytti í Frogmore Cottage sem er aðeins minna hús enda prinsinn ekki lengur starfandi meðlimur konungsfjölskyldunnar. Andrés tók það aldrei í mál að flytja út og neitaði meira að segja að fara úr húsinu meðan umfangsmiklar framkvæmdir stóðu yfir í sumar af ótta við að honum yrði ekki hleypt aftur inn. Andrés býr í Royal Lodge ásamt Söruh Ferguson, fyrrverandi eiginkonu sinni.